fbpx
Þorrablót&herrakvöld (Instagram Post (45)) (12)

Þorrablót 113 – Aðgönguarmböndin fyrir þorrablót 113 eru mætt

Kæru gestir,
 
Við viljum láta ykkur vita að aðgönguarmböndin fyrir þorrablót Fram 113 eru mætt á svæðið. Hægt að sækja þau á skrifstofutíma í Fram-heimilinu, Úlfarsárdal.
 
Við hvetjum alla til að sækja armböndin tímanlega, helst fyrir miðvikudaginn í næstu viku. 
 
Þið eigið að hafa fengið póst í desember varðandi borðanúmer. Endilega muna númerið á borðinu ykkar! 
________________________________________
Hagnýtar upplýsingar fyrir þorrablótið
 
🕕 Húsið opnar: kl. 18:00
🍽 Borðhald hefst: kl. 19:00 (stundvíslega)
🚫 Ekki er leyfilegt að koma með eigið áfengi (leitað verður á fólki við inngang)
💃 Opnar fyrir gesti á ball: kl. 22:30
🕐 Húsið lokar: kl. 01:00
________________________________________
 
Ennþá hægt að kaupa miða á safnborð (5 borð eftir): https://ticket.ordo.is/event/thorrablot-safnbord-fram-2026
 
Einnig eru til sölu ballmiðar: https://ticket.ordo.is/event/thorrablot-fram-ballmidi-2026
 
Við hlökkum til að eiga frábært kvöld með ykkur!
 
MBK,
 
Nefndin

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!