Jón Erik Sigurðsson skíðamaður úr Fram hefur tryggt sér sæti á vetrarólympíuleikunum á Ítalíu en þeir fara fram í Milan Cortina 6. – 22. febrúar næstkomandi. Þar með eigum við Framarar keppanda á Ólympíuleikum í einstaklingsíþrótt í fyrsta sinn.
Jón Erik endaði efstur íslenskra karla á nýjum stigalista alþjóða skíðasambandsins og tryggði sér þar með sæti Íslands á Ólympíuleikunum. Ísland fær eitt sæti á Ólympíuleikunum í gegnum kvótakerfi og fellur það eins og áður sagði í hlut Jóns Eriks.
Það verður því spennandi að fylgjast með Jón Erik á Ólympíuleikunum í næsta mánuði.
Til hamingju Jón Erik og gangi þér vel.