Næsti leikur hjá strákunum er á föstudaginn við ÍR.
Þeir bræður Viktor og Theodór eru öllum hnútum kunnugir í Seljahverfinu, enda hófu þeir sína handknattleiksiðkun hjá Íþróttafélagi Reykjavíkur á sínum tíma.
Nú í ÍR liðinu eða öllu heldur starfsliðinu er eitt heldur betur kunnuglegt andlit en aðstoðarþjálfari ÍR liðsins er okkar eigin Róbert Árni Guðmundsson, sem við flest þekkjum bæði sem leikmann og svo í seinni tíð sem þjálfara hjá okkur um árabil.
Framstrákarnir þurfa að kalla fram sitt besta til að slá út ólseigt lið ÍR og við þurfum á ykkar stuðningi að halda.
Áfram FRAM!