Áttu fótboltaskó sem þú notar ekki lengur? Gefðu þeim nýtt líf!
Knattspyrnuliðið Ascent Soccer vinnur að því að veita ungu fólki í Malaví tækifæri til að láta drauma sína rætast í gegnum knattspyrnu. Þó hæfileikar finnist alls staðar í heiminum eru tækifærin því miður ekki þau sömu.
Ascent Soccer kemur til Íslands í júlí til þess að taka þátt í Reycup og munu krakkarnir frá Malaví einnig koma í heimsókn í Úlfarsárdalinn og spila æfingaleiki gegn Frömurum á meðan á Íslandsdvöl þeirra stendur.
Með því að gefa notaða fótboltaskó getur þú hjálpað ungum leikmönnum í Malaví að halda áfram að æfa, keppa og þróast. Tekið verður á móti skóm í íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal til 5. ágúst.
