Fréttaritari Framsíðunnar var fenginn af gamalgrónu fótboltavefriti hér í borg til að spá fyrir um úrslit næstu leikja í efstu deild karla. Það gerði hann svikalaust og notaði tækifærið til að sparka í allar áttir og hampa einungis uppöldum Frömurum allra liða. Því þannig gerir maður. Á sama miðli var knattspyrnukona sem ku spila fyrir KR látin segja til um úrslit næstsíðustu umferðar Bestu deildar kvenna fyrir uppskiptingu. Það var leiður lestur, því eftir að hafa lesið í flug fugla, stöðu himintungla og innyfli dýra spáði hún því að Stjarnan myndi sækja þrjú stig í Dal draumanna – vinna 2:1 og sigurmarkið kæmi beint úr hornspyrnu. „Mundu fimmtánda mars!“ – sagði spákarlinn við Sesar og það var því með smá ónotatilfinningu í maganum sem fréttaritarinn lagði af stað á litlu frönsku rafmagnsdósinni sinni og tók stefnuna á Lambhagavöll.
Það var glaða sólskin og nokkur vindur – sem enginn fann þó fyrir í stúkunni okkar góðu – og talsverður fjöldi fólks, enda höfðu íbúasamtök hverfisins af örlæti sínu ákveðið að bjóða á völlinn. Garðbæingar eru hagsýnt fólk og láta ekki slík kostaboð framhjá sér fara. Þeir mættu vel þrátt fyrir að hafa að heldur litlu að keppa í deildinni. Fyrir leik var skemmtileg myndataka með öllum aðstandendum leiksins sem mættu í fótboltatreyjum að eigin vali til að styðja börn með krabbamein. Vel til fundið.
Það voru smábreytingar frá liðinu sem steinlá í Njarðvík í síðustu umferð, en að mestu var þetta þó kunnugleg uppstilling. Orkus í marki. Aftasta varnarlínan var: Emma, Gilmore og Kristín Magdalena, átján ára sem kom ný inn. Brookleynn og Katrín S. í vængbakvörðum. Una Rós aftast á miðjunni með Hildi Maríu og Söru Svanhildi fyrir framan sig og Taylor og Alda uppi á toppi.
Fréttaritarinn, sem var einn á ferð að þessu sinni og þekkti ekki marga á vellinum, var varla búinn að fá sér sæti í stúkunni og munda minnisblokkina þegar sóknarlotur Stjörnunnar fóru að dynja á Frammarkinu. Eftir innan við mínútu lá boltinn í netinu en búið var að flagga rangstöðu. Mínútu síðar átti gömul og ástsæl Fram-kempa, sem núna leikur fyrir Garðbæinga, hörkuskot sem sleikti stöngina. Enn fengu Stjörnukonur færi og í raun hefði staðan getað verið orðin 0:3 þegar fyrsta markið kom á sjöundu mínútu með glæsilegu bylmingsskoti, 0:1 og spádómur KR-ingsins varð sífellt meira yfirþyrmandi.
Framarar ætluðu að veðja á skyndisóknir og eftir tæpan stundarfjórðung mátti litlu muna að Alda næði að komast ein í gegn eftir misheppnaða sendingu aftur til markmanns. Fram virtist vera að vinna sig inn í markið þegar ógæfan leið yfir. Kristín Magdalena hafði fengið högg í andlitið og stóð utan vallar meðan reynt var að stöðva fossandi blóðnasir. Stjörnunni tókst að nýta liðsmuninn, splundruðu Framvörninni og skoruðu 0:2. Staðan var alvarleg og slógu Framarar upp stuttum liðsfundi eftir markið.
Hvað sem þar var sagt virkaði greinilega prýðisvel því allt í einu var eins og kviknaði á okkar komum. Ekki liðu nema fjórar mínútur uns Alda minnkaði muninn af stuttu færi eftir að gestirnir höfðu ítrekað varist á línu skotum frá Taylor, 1:2 og leikurinn opinn á ný (en spásögnin ljóta óþægilega nærri því að raungerast).
Tveimur mínútum eftir markið átti Taylor góða rispu og uppskar hornspyrnu. Hún var tekin beint af æfingasvæðinu og lauk með því að Alda smellti boltanum í stöngina þar sem Emma var aðeins of sein að hugsa og náði ekki að pota frákastinu í tómt netið. Alda og Sara Svanhildur áttu svo báðar ágætis færi það sem eftir leið hálfleiksins.
Í hléi færði fréttaritarinn sig upp í fínumannastúkuna, þar sem finna mátti kaffi og hart bakkelsi frá getraunakaffinu um morguninn. Þar voru líka allar helstu hetjurnar: Sigríður formaður, Gummi Torfa, Elín og Svanhvít Valtýs. Það var enginn að fara að færa sig aftur niður í stúku úr þessu partýi.
Í byrjun seinni hálfleiks gerði Fram tvöfalda skiptingu. Katrín Erla kom inná fyrir Unu Rós og Harpa fyrir Kristínu Magdalenu, sem hafði raunar staðið sig prýðisvel í leiknum. Líkt og fyrir hlé byrjuðu gestirnir á að skora rangstöðumark. Stjörnubekkurinn mótmælti niðurstöðunni harkalega og verður að segjast að línuvarslan var ekki sannfærandi í leiknum og dómarinn tók frekar skringilega línu sem fólst í að flauta lítið þótt um mjög óljósan hagnað væri að ræða. Þetta bitnaði þó jafnt á báðum liðum.
Leikurinn róaðist fátt bar til tíðinda fyrsta kortérið eftir hlé. Stjarnan hefði getað farið langt með að klára leikinn eftir klukkutíma þegar álitleg Framsókn rann út í sandinn, en Stjarnan geystist fram. Harpa bjargaði vel en eftir sem áður voru Stjörnukonur orðnar fjórar á móti tveimur áður en Framkonur náðu að koma sér aftur til baka. Þessi sókn virtist vekja Framliðið aftur til lífsins og við tók tímabil þar sem Fram sótti af miklum þunga og skapaði sér fjölda færa – þótt gestirnir minntu í sífellu á sig með skyndisóknum á móti. Þannig small boltinn í stöng Frammarksins á 64. mínútu og örskömmu síðar bjargaði Emma á síðustu stundu í vörninni.
Þótt Fram væri meira og minna með boltann og reyndi að þjarma að Stjörnumarkinu vantaði alltaf herslumuninn. Skot utan af velli fóru yfirleitt yfir eða framhjá og markvörður gestanna þurfti lítið að hafa fyrir hlutunum. Hlín kom inná fyrir Katrínu S. þegar kortér var eftir og lét hún þegar til sín taka. Tíminn leið og örlítil örvænting var farin að brjótast út í fínumannastúkunni. „Hvað erum við eiginlega búin að fá mörg horn?“ – spurði Gummi Torfa í forundran þegar Sara Svanhildur stillti upp enn einni hornspyrnunni á 86. mínútu. Enginn hafði tíma til að svara spurningunni – sem var líklega retórísk – því spyrnan rataði beint á kollinn á Öldu sem stangaði hann í netið, 2:2 og fyllilega verðskuldað jöfnunarmark!
En eitt stig gerir ekki mikið í fallbaráttu. Framkonur vildu öll þrjú. Mínútu eftir markið virtist Alda sloppin í gegn, en rangstöðuflaggið fór á loft. En á loka mínútu venjulegs leiktíma náði Taylor að hemja boltann í vítateignum, sneri á mótherja og renndi síðan yfir á Söru Svanhildi sem skoraði af öryggi, 3:2 og allt trylltist og þurrir múnsnúðar þeyttust í allar áttir! Á þeim fjórum mínútum sem bætt var við mátti minnstu muna að gestirnir spilltu veislunni með skoti í þverslá og Orkus bjargaði svo vel úr frákastinu.
Frábær sigur og ofboðslega dýrmætur á lokasprettinum. Alda fær titilinn sem maður leiksins, en Sara Svanhildur kemur fast á eftir. Erfiður leikur í Eyjum framundan en framtíðin er björt og blá.
Sjáumst á karlaleiknum á morgun.
Geggjaðar myndir frá Kidda Trausta Fótbolti Fram-Stjarnan Besta Deild KVK 2026 | Flickr
Stefán Pálsson