Eins og alþjóð veit þá voru Vetrarólympíuleikarnir í Milano–Cortina 2026 formlega settir 6. febrúar síðastliðin. Það þýðir bara eitt að það styttist í að okkar maður Jón Erik hefji keppni.
Jón Erik Sigurðsson skíðamaður úr Fram mun keppa í stórsvigi og svigi á mótinu og mun hann hefja leik á laugardag 14. feb. en þá fer fram keppni í stórsvigi, svigið er svo á dagskrá mánudaginn 16. feb.
Spennan fer því að magnast enda stutt í að Jón Erik fái að renna sér í brekkum Bormio þar sem alpagreina kepppni karla fer fram.
Jón Erik kom í Ólympíuþorpið í Bormio þann 6. febrúar og hefur dvalið þar við æfingar og undirbúnings fyrir keppnia sem framundan er.
Það verður sannarlega spennandi að fylgjast með Jóni Erik á stóra sviðinu á laugardagsmorgun. Sýnt verður beint frá keppnum á RÚV og hefst útsending kl. 08:50 báða dagana.
Við sendum hlýja baráttukveðju til Jóns á Ítalíu. Gangi þér vel.