fbpx
isl

Íslandsmótið í tækni – Fram í 2. sæti í keppni félagsliða

Íslandsmótið í tækni fór fram um helgina. Fram átti þar ellefu vaska keppendur, fjóra í C flokkum, þrjá í B flokkum og fjóra í A flokkum. Alls landaði liðið sex Íslandsmeistara titlum auk þess að næla sér í fjögur silfur verðlaun og tvenn brons verðlaun.

Lucas Reyes var sigursælastur Framara að þessu sinni þar sem hann sigraði í einstaklingskeppninni í gríðarlega fjölmennum ungmenna flokki, auk þess að taka einnig gullverðlaun í keppni para og þriggja manna hópa með liðsfélugum sínum í C flokki. Lucas er því þrefaldur Íslandsmeistari eftir daginn.

Rauðu beltin stóðu sig vel að vanda í B flokki og unnu tvenn silfur verðlaun og eitt brons.
Öldungarnir í A flokki unnu svo alla sína flokka og lönduðu þremur Íslandsmeistara titlum og tveimur silfur verðlaunum. Þar af varð Rúdolf Rúnarsson Íslandsmeistari í einstaklings flokki annað árið í röð. Frábær árangur hjá honum.

Rauð og svört belti telja til stiga í liðakeppninni. Þrátt fyrir að vera ekki með full skipað lið á mótinu náði Fram öðru sætinu í keppni félagsliða annað árið í röð.
Frábær árangur og deildin afar stolt af sínu fólki.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!