fbpx
Una gegn þrótti

Botnsskáli

Á síðustu tveimur vikum hefur fréttaritari Framsíðunnar í tvígang farið um Hvalfjörðinn eftir að varla ekið hann í áraraðir. Fortíðarþráin hellist yfir á leiðinni, einkum þegar farið er framhjá gömlu þjóðvegasjoppunum sem skiptu fjölskyldum landsins upp í þrjá stríðandi þjóðflokka. Sumir stoppuðu í Ferstiklu, aðrir í Þyrli. Fjölskylda fréttaritarans var Botnsskálafólk. Þar var pissað. Pulsað sig upp og jafnvel tékkað á tíkallakössum Rauða krossins. Núna sést einungis votta fyrir sökklum sjoppunnar í Botni.

Það var ekki náttúrurómantík eða bensínstöðvanostalgía sem rak fréttaritarann fyrir fjörðinn heldur langvarandi rafvirkjavinna í veglýsingu Hvalfjarðarganga sem hefst snemma hvert einasta kvöld. Góðu fréttirnar fyrir stuðningsfólk og leikmenn Akraness eftir bikarleik kvöldsins voru þær einar að þau sluppu aftur heim áður en göngunum var lokað.

Eftir að hafa staðið uppá kassa við verslanir ÁTVR og Hagkaupa að dreifa kosningabæklingum allan daginn stakk fréttaritarinn af frá öllum sínum frambjóðendaskyldum til að horfa á Framkonur taka á móti Skaganum í 16-liða úrslitum bikarsins. Eftir þunga byrjun í deildinni, þar sem Framliðið hefur leikið ágætlega en lítið uppskorið var löngu tímabært að landa sigri. Bikarleikur gegn Lengjudeildarliði var dauðafæri til þess.

Tvær breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu frá síðasta leik. Una Rós og Sylvía Rós viku fyrir Öldu og Katrínu. Liðið var því á þá leið að Orkus stóð milli stanganna, Harpa, Emma Young og Gilmore í öftustu röð. Katrín og Freyja Dís á sitthvorum kantinum. Hildur, Brookelynn og Sara Svanhildur á miðjunni. Hamlett og Alda frammi.

Á bílaplaninu rakst fréttaritarinn á foreldra Söru Svanhildar, sem furðuðu sig á því hvað alla leiki okkar það sem af er leiktíð virðist hafa borið upp í vindstrekkingi og næðingi. Þetta er með hreinum ólíkindum í ljósi þess hvílík veðurparadís Lambhagavöllur er alla jafnan. Engin undantekning varð á þessu nú og Framarar byrjuðu með vindinn í fangið.

Eftir kæruleysi í Framvörninni fengu gestirnir fyrsta færið strax á þriðju mínútu, en skutu í hliðarnetið. Eftir það tóku okkar konur hins vegar öll völd á vellinum. Fyrsta dauðafærið kom á níundu mínútu þar sem Katrín lék upp að endamörkum, sendi fyrir en Hamlett tókst ekki að pota boltanum inn á fjærstönginni. Strax á næstu mínútu átti Katrín aftur sendingu fyrir markið og enn náði Hamlett ekki í knöttinn. Tvö til þrjú hálffæri Framara litu dagsins ljós á næstu mínútum en það var þó Skagaliðið sem fékk besta færið á tuttugustu mínútu þar sem framherji ÍA fékk opið marktækifæri en Orkus varði stórkostlega.

Loksins tókst að brjóta ísinn á 25. mínútu þegar Freyja Dís sendi fyrir markið af hægri kantinum, boltinn barst af Hamlett og hrökk beint fyrir tærnar á Öldu sem var dauðafrí og skoraði auðveldlega, 1:0. Eftir markið tóku Framarar fótinn aðeins af bensíngjöfinni og aðeins dró úr sóknarþunganum. Á 39. mínútu átti Sara Svanhildur gott langskot á mark sem var slegið beint fyrir Öldu sem stóð ein fyrir opnu marki en tókst einhvern veginn að skjóta framhjá úr besta færi ársins. Þetta hlýtur að kalla á framlag í sektarsjóðinn! Rétt undir lok fyrri hálfleiks komu Framarar svo boltanum í netið á nýjan leik eftir hornspyrnu en dómarinn mat það sem svo að brotið hefði verið á markverðinum.

Nýsteiktir Framborgarar biðu í leikhléi ásamt fjörlegum umræðum um komandi kosningar. Eftir magnþrungnar kosningaræður fréttaritarans náði hann að koma sér aftur í fínumannastúkuna með hinum kuldakreistunum. Seinni hálfleikur var hafinn og Framarar búnir að gera sína fyrstu breytingu þar sem Una Rós kom inná fyrir Hamlett. Framarar voru nú með vindinn í bakið og áttu gestirnir bágt með að verjast því, einkum í hornspyrnum. Það var einmitt eftir horn á 50. mínútu sem okkar konur tvöfölduðu forystuna þar sem Sara Svanhildur skoraði nánast af marklínu. Mínútu síðar freistaði Katrín þess að lyfta boltanum yfir Skagamarkvörðinn, sem sló naumlega í horn. Enn leið mínúta þar til Una Rós átti skot sem small ofan á þverslánni.

Skagaliðið virtist heillum horfið en átti þó sína spretti. Á 55. mínútu tókst einni gulklæddri að snúa af sér varnarmann, komst ein á móti markverði en Orkus varði frábærlega! Hafi einhverjar vonir um endurkomu kviknað hjá gestunum var endanlega slökkt í þeim beint í kjölfarið þegar Una Rós skoraði beint úr hornspyrnu á 58. mínútu. Leikurinn var í raun búinn og við tók einstaklega bragðdaufur hálftími. Þegar tuttugu mínútur voru eftir gerði Fram tvöfalda skiptingu. Hanna Faith og Júlía Margrét komu inná fyrir Söru Svanhildi og Freyju Dís. Undir lokin kom svo Krista Dís inná fyrir Brookelynn.

Leikurinn fjaraði endanlega út. Vallarþulurinn tilkynnti að áhorfendur hefðu verið 74 talsins. Sannfærandi sigur og Fram í fyrsta sinn komið í fjóðrungsúrslit frá því að kvennaflokkurinn var endurvakinn. Katrín var maður leiksins og nú er bara að fá heimaleik í næstu umferð til að færast enn nær hinum óumflýjanlega bikarmeistaratitli í haust.

Stefán Pálsson

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!