fbpx
Fred gegn KR.

Footloose

Í kvikmyndinni Footloose frá 1984 flytur Ren MacCormack, leikinn af Kevin Bacon, til smábæjarins Bomont í Utah. Þorpið reynist í heljargreipum klerks nokkurs sem hefur viðurstyggð á dansi og bannar allar slíkar fótmenntir. En afburðamönnum verður ekki haldið niðri – svo hinn ungi Ren býður kerfinu birginn og vinnur loks frægan sigur með dansi!

Rúmum fjórum áratugum síðar mætti Hnífsdalstrymbillinn Kristján Freyr með kjuða undir arminum og hristur í vasanum, albúinn að berja húðir á KR-vellinum við Kaplaskjólsveg en fékk þau svör að það væri ekki í boði: trommur eru bannaðar á KR-vellinum! Hvers vegna? Jú, vegna þess að Vesturbæingar hata allt sem gott er og skemmtilegt. Taktleysið er algjört í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Myndu Framarar lyppast niður gagnvart valdinu eða myndu þeir bregðast við eins og hinn ungi Ren MacCormack og bjóða því birginn? Meira um það síðar.

Fréttaritari Framsíðunnar var kominn snemma í Vesturbæinn, enda stuðningsmannaklúbbur KR búinn að véla hann og Rikka Daða til að sitja fyrir svörum í veislusalnum. Rikki var prúður og háttvís í svörum en fréttaritarinn var með dólg – allt mæltist þó þokkalega vel fyrir hjá öðlingunum í Frostaskjóli. Margt slæmt má segja um KR-inga, en þeir sýna amk enn þá háttvísi að vera illa við okkur Framara. Maður kann að meta það!

Byrjunarliðið var kunnuglegt með þeirri undantekningu að Kyle var meiddur og utan hóps. Viktor stóð því í markinu. Þorri og Sigurjón aftastir með Kennie sem einhvers konar líberó sem hljóp þangað sem honum sýndist hverju sinni. Halli og Már bakverðir. Ægir Jarl aftastur á miðjunni. Fred og Tibbling þar fyrir framan. Atli Þór og Vuk á toppnum.

Fréttaritarinn og Rabbi mættu í KR-salinn rétt fyrir byrjun leiks og saman rölti hersingin í stúkuna, þar sem staðið var aftast – rétt við hliðina á Gumma Torfa og Pétri Ormslev sem skartaði forláta Leeeds-trefli.

Á síðustu leiktíð kvartaði þjálfari KR sáran yfir því að mótherjarnir stunduðu þann lúalega leik að pakka í vörn í stað þess að pressa framalega gegn liði hans. Þetta taldi hann gríðarlegan ódrengskap og nánast svindl. Það hefur því væntanlega glatt þjálfarann gríðarlega að Fram pressaði hátt frá fyrstu mínútu. Færin létu heldur ekki á sér standa.

Framarar áttu fáein hálffæri á fyrsta stundarfjórðungnum, það besta þegar Fred mistókst að reka tánna í sendingu frá Mása. Eftir um hálftíma komst Kennie svo í prýðilegt færi en skot hans rataði beint á KR-markvörðinn. Heimamenn sköpuðu sér fáein prýðileg færi en Viktor var ávalt vakandi og varði vel.

Á 41. mínútu unnu Framarar boltann á miðjum vellinum og Fred fór á skeið. Hann lék að vítateigslínunni og allir biðu eftir sendingu til hliðanna en hann lét vaða á markið og skoraði glæsilega, 0:1. Fred var okkar langbesti maður í kvöld og er raunar búinn að vera besti maður deildarinnar í sumarið eftir að hann færði sig framar á völlinn en í fyrra.

Forystan hefði verið verðskulduð í hléi en því miður jöfnuðu KR-ingar í uppbótartíma eftir örlítið einbeitingarleysi í Framvörninni. 1:1 og allt aftur á byrjunarreit. Framarar hefðu raunar getað náð forystunni aftur á lokamínútunni eftir darraðardans í vörn KR.

Eftir langt og gott stopp í stuðningsmannasvæði KR-inga var seinni hálfleikur hafinn þegar fréttaritarinn rölti á ný í stúkuna og náði með herkjum að sjá Atla þruma í hliðarnetið á 48. mínútu. Við tók heldr dauflegur kafli og sá fréttaritarinn næst ástæðu til að pára í minnisbókina þegar Atli fór af velli fyrir Róbert Hauksson á 56. mín.

Á 69. mínútu vildu þeir áköfustu á Frampöllunum fá rautt spjald á Vesturbæing sem braut á Vuk sem fremsta manni, en gula spjaldið var látið nægja. Þremur mínútum síðar komst Ægir Jarl, sem átti afbragðsleik, í dauðafæri en misnotaði það.

Tibbling fót hálflaskaður af velli fyrir Frey á 74. mín. og nokkrum mínútum síðar slapp Róbert einn í gegn en var flaggaður rangstæður. Dómari leiksins tók annars þann pól í hæðina að leyfa ótrúlega mikla hörku og bakhrindingar.

Þorri fór meiddur af velli fyrir Israel þegar um tíu mínútur voru eftir. Á 83. mínútu skeiðaði Freyr upp og skaut að því er virtist upp í hönd KR-ings í vítateignum. Ekkert var dæmt og röndóttir brunuðu upp og skoruðu, 2:1 og Fram komið undir þvert á gang leiksins. Framarar hentu öllu framávið og á fyrstu mínútu uppbótartímans bar það ávöxt þar sem Sigurjón þvældi boltanum í netið eftir hornspyrnu, 2:2 og ásættanleg úrslit miðað við það sem komið var. Á heimleiðinni skutlaði Rabbi fréttaritaranum og Hnífsdalstrymblinum heim og fræddist um drakónísk bönn Vesturbæinga við slagverksleik. Mennirnir sem hata ryþma og gleði fengu makleg málagjöld. Fram er áfram skemmtilegasta liðið í deildinni og komið í 20 mörk í þremur leikjum. Næsta stopp er sigur í Garðabæ næsta föstudag.

Stefán Pálsson

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!