fbpx
Fram open (8)

Fram Open – skráning hafin!

Fram Open fer fram með glæsibrag föstudaginn 7. ágúst 2026 á golfvellinum á Flúðum. Við bjóðum félagsmönnum, stuðningsmönnum og velunnurum félagsins velkomna til að taka þátt í frábæru móti með góðum félagsskap. Ræst verður út af öllum teigum kl. 13.00.  Frábært væri ef þátttakendur væru komnir á svæðið u.þ.b. hálftíma fyrr. 

Þátttökugjald er 13.500 kr. og innifalið í því er mótsgjald, teiggjöf og matur að keppni lokinni. Skráning fer fram á golfboxinu –https://tourentry.golfbox.dk/?cid=5727053 – gerum undanþágu ef viðkomandi er ekki í klúbb og getur ekki skráð sig gegnum boxið (hafa samband á toggi@fram.is)

Eins og áður verður boðið upp á fjölbreytta verðlaunaflokk og skemmtileg aukaverðlaun. Punkta og höggleikur ásamt lengdar og nándar verðlaunum.

Hámarksforgjöf á mótinu er 24 á karla og 28 á konur.

Beiðni um holl má senda á toggi@fram.is

Tryggðu þér þátttöku sem fyrst – Fullt hefur verið í mótið gegnum tíðina!
Við hlökkum til að sjá ykkur á Flúðum!

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!