Því miður þurfum við að tilkynna að Fram Open golfmót okkar Framara, sem átti að fara fram þann 7. ágúst, hefur verið aflýst vegna dræmrar þátttöku.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum öllum sem sýndu mótinu áhuga og skráðu sig til leiks. Endurgreiðsla mótsgjalda verður framkvæmd eins fljótt og auðið er.
Það er alltaf næsta ár eins og maðurinn sagði!