Content

3.3.2010

Bikarmeistarar í 4. fl.kv. 2010.

4.flokkur kvenna Bikarmeistarar - Umfjöllun

 
Elva Þóra var valinn maður leiksins og tekur hér við verðlaunum frá formanni HSÍ og landsliðsþjálfara HSÍ.

4.flokkur kvenna varð um helgina bikarmeistari í handbolta. Stelpurnar höfðu undirbúið sig gríðarlega vel fyrir leikinn og mættu vel stemmdar til leiks. Gríðarlega flott umgjörð var í kringum leikinn þar sem stelpurnar voru kynntar inn á völlinn, þjóðsöngurinn leikinn, keppnisdúkurinn á gólfin, toppdómarar og ríflega 400 áhorfendur fylgdust með leiknum.

 

Stelpurnar byrjuðu leikinn að krafti, spiluðu sterka 6-0 sem FH-ingar áttu fá svör við. Þær keyrðu grimmt hraðaupphlaup og stilltu síðan upp í vel skipulagðar sóknir, það skilaði þeim 7-3 forystu eftir 10 mínútna leik. Mest varð síðan forskotið 8 mörk í fyrri hálfleik 11-3. Skömmu áður hafði FH tekið upp á því að taka tvo leikmenn Fram úr umferð, það hafði gengið vel fyrir Fram-stelpurnar til að byrja með. En síðan kom slæmur kafli hjá þeim, voru óheppnar með skot í sókninni og misstu FH stelpurnar klaufalega í gegnum vörnina. Einnig vantaði aðeins upp á skynsemina hjá stelpunum, þær nýttu sér ekki nægilega vel að spila fjórar á fjórar og flýttu sér allt of mikið. Í kjölfarið fylgdu 7 mörk frá FH í röð og þær náðu að minnka muninn í 11-10. Þá var eins og stelpurnar rönkuðu við sér á ný og héldu inn í búningsherbergin í hálfleik með þriggja marka forystu, 14-11.

 

Seinni hálfleikinn byrjuðu stelpurnar af sama krafti og þann fyrri. Vörnin var gríðarlega sterk og áttu FH stelpur í erfiðleikum með að koma skoti á markið. Hægt og bítandi juku Framstelpur við forskotið og virtust vera með unnin leik í höndunum þegar staðan var 22-12 og 10 mínútur eftir. En það var greinilegt að FH stelpur voru ekki búnar að gefast upp og okkar stelpur voru farnar að fagna of snemma. Forskotið fór ört minkandi, vörnin fór að slaka á og FH skoraði nánast úr hverri einustu sókn. Á sama tíma hjálpaði það FH-ingum að okkar stelpur skiptust á að skjóta í stangirnar og að missa boltann klaufalega eftir lélegar sendingar. Forskotið var komið niður í 3 mörk þegar innan við ein og hálf mínúta var til leiksloka. Áfram drógst saman með liðunum og þegar Fram fór í síðustu sóknina voru um 15 sekúndur til leiksloka, fljótlega kemst FH inn í sendingu og vinna boltann. Framstelpur gera það eina rétt í stöðunni að brjóta á leikmanni FH og fær Hafdís Iura að launum verðskuldað rautt spjald en um leið er leikurinn úti og Fram fer með sigur af hólmi.

 

Markaskorunin dreyfðist nokkuð jafnt milli manna. Kristín Helgadóttir skoraði mest eða 6 mörk. Elva Þóra Arnardóttir skoraði 5 mörk og átti fjölda stoðsendinga, hún var valinn maður leiksins. Hafdís Iura skoraði einnig 5 mörk en var tekin úr umferð nánast allan leikinn. Jóhanna Björk Viktorsdóttir skoraði 4 mörk. Karólína Vilborg Torfadóttir skoraði 3 mörk og var líkt og Hafdís tekin úr umferð allan leikinn. Íris Kristín Smith skoraði einnig 3 mörk. Þá varði Eydís Blöndal 15 skot í markinu.


Frábær sigur hjá stelpunum sem virtust ætla að stressa áhorfendur líkt og meistaraflokkur kvenna hafði gert daginn áður með því að glutra niður góðri forystu á stuttum tíma.

Þetta er sannarlega frábært fyrir stelpurnar í 4.flokki sem lentu í erfiðleikum í byrjun tímabils og leika í 2.deild. En þær hafa sýnt að þær eiga meira en erindi í.deildina, hafa lagt þrjú 1.deildar lið á leið sinni að titlinum.

Næsta verkefni hjá þeim er að spila þrjá úrslitaleiki í toppbaráttu 2.deildar og tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Þar eiga þær í baráttu við Víking og Val, næsti leikur hjá þeim er á sunnudaginn næstkomandi kl 17 í Víkinni og hvetjum við sem flesta að mæta og styðja við þær þar.


Til Hamingju stelpur.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l