Við héldum okkar fyrsta súpufund 30 janúar og nú ætlum við að halda næsta fund eins og við lögðum upp með. Það var góð mæting á síðasta súpuhádegi en um 60 manns mættu og almenn ánægja með hvernig til tókst. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu og brauð.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverð kr. 500.-
Annar fundurinn í súpuröðinni verður föstudaginn 27. febrúar kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.
Heiðursgestur og frumstofnandi að súpuhádeginu verður Hörður „ Castró“ Einarsson.
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu í hádeginu á föstudag og endilega taka með sér félaga.
Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM