Nú höldum við okkar þriðja súpufund en það var góð mæting í síðasta súpuhádegi en um 70 manns mættu og almenn ánægja með hvernig til tókst. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu og brauð.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-
Þriðji fundurinn í súpuröðinni verður föstudaginn
27. mars kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.
Heiðursgestur og frumstofnandi að súpuhádeginu er og verður Hörður „ Castró“ Einarsson.
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu í hádeginu á föstudag og endilega takið með ykkur félaga.
Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM