fbpx
vefur

FRAM á möguleika á því að spila fjóra úrslitaleiki í Coka Cola bikar HSÍ

FRAM - Selfoss - Coke1 - 190913FRAM - Valur - Coke1 - 190913FRAM - Víkingur  4.fl.kv.Það verður sannkölluð hátið hjá okkur í FRAM á sunnudag, því þá leikum við “allavega”þrjá úrslitaleiki í bikarkeppni HSÍ,  Coka Cola bikarnum.  Þegar þetta er skrifað þá eigum við möguleika á því að spila fjórða leikinn því stelpurnar  í 4. fl.kv. eldri munu leika í undanúrslitum á fimmtudag.  Eftir þann leik kemur í ljós hvort við leikum þrjá eða fjóra úrslitaleiki á sunnudag.
Leikirnir fara fram í Laugardalshöll en þar verður umgjörðin glæsileg og engu til sparað.
Það er alltaf draumur hvers leikmanns að komast í höllina og leika bikarúrslitaleik og þessir leikir eru þeir leikir sem allir yngri leikmenn vilja prufa að leika áður en þeir fara á stórasviðið með meistaraflokkunum.
Við FRAMarar eigum eins og áður sagði allavega  3 leiki í Höllinni sunnudaginn 28. febrúar.
Leikið verður sem hér segir:

Kl. 09:30   4. fl. kv. Y   FRAM – Víkingur
Kl. 18:30   3. fl. kv.       FRAM – Selfoss
Kl. 20:30   2. fl. ka.       FRAM – Valur

Hvetjum alla FRAMarar til að mæta í Höllina á sunnudag og hvetja krakkana okkar og styðja við bakið þessum glæsilegu fulltrúum sem við eigum í  úrslitaleikjum Coka Cola bikarsins.

Allir leikirnir verða sýndir beint á www.sporttv.is

ÁFRAM FRAM

 

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!