Það er ánægjulegt fyrir okkur FRAMara að geta tilkynnt að Handknattleiksdeild Fram hefur gengið frá samningi við Ernu Guðlaugu Gunnarsdóttur. Samningur FRAM við Ernu Guðlaugu er til tveggja ára.
Erna Guðlaug er fædd 23. nóvember 2000 og er því 16 ára í dag. Erna Guðlaug hefur leikið í stöðu vinstri hornamanns og/eða sem leikstjórnandi. Hún kemur upp úr yngri flokkastarfi Fram og hefur átt sæti í yngri landsliðishópum Íslands. Hún var valinn nú í vikunni í U 17 ára landslið Íslands.
Erna Guðlaug er ein af okkar efnilegu leikmönnum sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni.
Handknattleiksdeild FRAM