Mikael Egill Ellertsson leikmaður 3.flokks Fram var nýverið við æfingar hjá enska félaginu Norwich.
Þetta var í annað skipti á þessu ári sem enska félagið býður Mikael til æfinga. Hann hélt utan í maí og hefur greinilega náð að heilla forráðamenn félagsins sem buðu honum aftur til sín nú í ágúst.
Í báðum ferðum lék Mikael æfingaleiki með U16 og U18 ára liðum Norwich og tókst honum að skora mörk í þeim leikjum sem hann tók þátt í.
Norwich mun án efa fylgjast vel með Mikael áfram og verður gaman að fylgjast með framhaldinu.
Það hefur verið í nógu að snúast hjá Mikael í sumar. Auk þess sem að leika með 3.flokki Fram lék hann sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti U16 ára landsliða sem fram fór í Keflavík í sumar.
Þar kom Mikael við sögu í tveimur leikjum, gegn Póllandi og Noregi.
Þá hefur Mikael verið valinn í úrtakshóp U17 ára landsliðsins fyrir undankeppni Evrópumótsins sem fram fer í Finnlandi í haust.
ÁFRAM AFRAM