fbpx
Auglýsing 2 vefur

Nýtt námskeið í Knattspyrnuakademíu Fram

Nýtt námskeið hjá Knattspyrnuakademíu Fram fyrir iðkendur fædda 1999-2005 hefst í næstu viku. Námskeiðið stendur í fjórar vikur, 6. nóvember – 1. desember. Skráning er hafin á skráningarsíðu Fram og takmarkast fjöldi þátttakenda við fjörtíu.

Knattspyrnuakademían er metnaðarfullt verkefni á vegum barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Fram en þetta er annað árið sem hún er starfrækt. Markmið akademíunnar er að gera iðkendum grein fyrir hvað þarf til að ná árangri í afreksknattspyrnu, bæta færni þeirra og auka skilning þeirra á mikilvægi þátta sem styðja við knattspyrnuþjálfunina; svo sem næringarfræði og sálfræði.

Iðkendur í 2. – 4. flokki karla og kvenna og foreldrar þeirra eru hvattir til að kynna sér þetta spennandi verkefni.

Knattspyrnuæfingarnar verða tvo morgna í viku (mánudaga og fimmtudaga kl. 6:15-7:20) og fara þær fram við bestu aðstæður í Egilshöll undir stjórn Zeljko Óskars Sankovic og þjálfara frá knattspyrnudeild Fram.
Zeljko er margreyndur afreksþjálfari og starfar sem yfirþjálfari yngri flokka hjá Fram. Aðrir knattspyrnuþjálfarar verða Pedró Hipólito þjálfari meistaraflokks Fram, Vigfús Geir Júlíusson og Heiðar Geir Júlíusson sem báðir hafa áralanga reynslu af þjálfun yngri flokka og síðast en ekki síst Arnar Freyr Gestsson markmannsþjálfari.

Knattspyrnuakademía Fram mun bjóða upp á þrjú námskeið í vetur; í nóvember, febrúar og apríl. Til viðbótar við knattspyrnuæfingar munu iðkendur nóta leiðsagnar sérfræðinga í næringarfræði, sálfræði, styrktarþjálfun, hlaupaþjálfun og jóga. Á þessu fyrsta námskeiði verður áhersla lögð á næringarfræði og jóga/teygju- og liðleikaþjálfun. Styrktarþjálfun, hlaupaþjálfun og sálfræði kemur svo inn á næstu tveimur námskeiðum í febrúar og apríl.

Það skiptir ekki síður máli að liðka og teygja á líkamunum en að styrkja hann. Gróa Másdóttir, jógakennari, mun mæta tvisvar sinnum á meðan á námskeiðinu stendur og kenna teygjur sem miðast við fótbolta. Í lok teygjuhlutans verður farið í öndunaræfingar og slökun enda afar mikilvægt að geta kúplað sig frá dagsins amstri þegar þörf er á.

Agnes Þóra Árnadóttir M.sc. í íþróttanæringarfræði sér um næringarfræðiráðgjöfina. Markmiðið með henni er að iðkendur öðlist betri matarvitund og aukinn áhugi á að nota næringu til að bæta sig í knattspyrnu. Agnes kemur til með að halda einn fyrirlestur fyrir iðkendur og foreldra auk þess sem iðkendur skila til hennar matardagbók og taka þátt í verklegri næringarfræðslu á æfingu. Markmiðið með næringarfæðiráðgjöfinni er að veita einstaklingsráðgjöf með eftirfylgni, til þess að þróa með sér enn betri matarvenjur.

Námskeiðsgjald er kr. 22.000- og skráning er hafin á https://fram.felog.is/.

Ef keypt eru fleiri en eitt námskeið er veittur afsláttur við kaup á seinni námskeiðunum.

Nánari upplýsingar veitir Daði í síma 587-8800 eða dadi@fram.is

Hér gefur að líta skemmtilegar svipmyndir frá síðasta námskeiði Knattspyrnuakademíu Fram frá því í vor.

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!