



Stefán Arnarson og Sigurgeir Jónsson landsliðsþjálfarar íslands U19 ára kvenna hafa valið hóp til æfinga 20. – 23. mars nk. Æfingarnar fara fram á Reykjavíkursvæðinu og verða æfingatímar kynntir þegar nær dregur.
Við FRAMarar erum stoltir af því að eiga fimm leikimenn í þessu æfingahópi Íslands U19 en þær sem voru valdar frá FRAM að þessu sinni eru:
Erna Guðlaug Gunnarsdóttir FRAM
Harpa María Friðgeirsdóttir FRAM
Jónína Hlín Hansdóttir FRAM
Lena Margrét Valdimarsdóttir FRAM
Sara Sif Helgadóttir FRAM
Gangi ykkur vel.
ÁFRAM FRAM