fbpx
Súpa vefur

Allir sáttir í súpu

Við FRAMarar héldum í dag fyrsta súpufund vetrarins. Mæting var góð en okkur telst til að mættir hafi verið rúmlega 50 konur og menn. Súpan sérstaklega góð, kraftmikil og haustleg. Frábær súpa.

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMara á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Ég verð bara að segja að þessir súpufundir eru gríðarlega vel heppnuð uppákoma. Mikið spjall á svölunum í góða veðrinu og “Var tæknin”  rædd vel og vandlega en sitt sýndist hverjum um þá tækni.

Það er von okkar  að sjá alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður fimmtudaginn 31. október 2019.

Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu. það má enn bæta við fólki og gaman að sjá enn fleiri í næstu súpu.

Takk fyrir samveruna í dag.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!