fbpx
Súpa vefur

Vel heppnaður súpufundur FRAM

Við FRAMarar héldum í dag þriðja súpufund vetrarins. Okkur telst til að það hafi verið rúmlega 50  menn og konur sem gæddu sér á þessari líka fínu súpu.
Súpan í dag sérlega bragðgóð og almenn ánægja með súpuna.

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða og stemmingin góð í dag.
Þetta var síðasti súpufundur ársins en við ætlum að taka upp þráðinn á nýju ári.

Næsti súpufundur verður fimmtudaginn 30. janúar 2020.

Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu fyrir komuna, fyrir það erum við mjög þakklát og hvað þessi uppákoma heppnast alltaf vel.

Takk fyrir okkur og sjáumst á nýju ári.

Minnum á íþróttamann FRAM sem verður tilkynntur mánudaginn 30. des. kl. 18:00 í veislusal FRAM.  Allir velkomnir.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!