fbpx
Flotta stelpur vefur

Skráning á sumarnámskeið FRAM í Grafarholti og Úlfarsárdal hefst 23. apríl.

SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2020 Grafarholt og Úlfarsárdalur
Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir í Úlfarsárdal í sumar. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram í og við félagsheimli FRAM í Úlfarsárdal v/Dalskóla. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á æfingasvæði FRAM í Úlfarsárdal á sama svæði og íþróttaskólinn. Handboltanámskeiðið verður haldið í íþróttahúsi Ingunnarskóla.

ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM
Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni.
Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla eftir hádegi og íþróttaskóla fyrir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti. 
Boðið verður upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

Námskeið 1.  08 -19. júní     09:00-16:00 (9 dagar)     
Námskeið 2.  22 – 03. Júlí    09:00-16:00  
Námskeið 3.  06 – 17. júlí     09:00-16:00
Námskeið 4.  20 – 24. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).

HANDBOLTASKÓLI FRAM
Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00 (börn fædd 2010-2013) og 13:00-16:00 (börn fædd 2006-2009) virka daga.  Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi Ingunnarskóla. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

Námskeið 1.   10 –  14. ágúst         13:00-16:00   (börn fædd 2010-2013).
Námskeið 2.   10 –  14. ágúst         09:00-12:00   (börn fædd 2006-2009).

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM
Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 13:00-16:00 alla virka daga.
Boðið er upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl.12:15 og er það  innifalið í gjaldinu. 

Námskeið 1.  08 -19. júní     13:00-16:00 (9 dagar)     
Námskeið 2.  22 – 03. Júlí    13:00-16:00  
Námskeið 3.  06 – 17. júlí     13:00-16:00
Námskeið 4.  20 – 24. júlí     13:00-16:00 (viku námskeið).

Skráning
Skráning hefst  23. apríl og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfi FRAM. https://fram.felog.is/

Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 11.000.-

Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 21.000.-

Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 6000.-  (5 dagar).

Veittur er 10% systkinaafsláttur og einnig er veittur 10% afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki. 

Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal og 533-5600 skrifstofa FRAM í Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst  toti@fram.is og dadi@fram.is

Í von um gott samstarf í sumar

Daði Guðmundsson íþróttafulltrúi FRAM  Grafarholti og Úlfarsárdal

Ágústnámskeið knattspyrnudeildar Fram

Í ágúst mun knattspyrnudeild FRAM bjóða uppá Copa America knattspyrnuskóla og útilífsnámskeið fyrir krakka á aldrinum 5 til 12 ára.

Copa America knattspyrnuskóli FRAM – drengjaskóli og stúlknaskóli

Þjálfarar námskeiðsins verða leikmenn meistaraflokka Fram, karla og kvenna, ásamt yngri flokka þjálfurum.

Hópnum verður skipt upp þannig að boðið er upp á sérstakan stúlknaskóla og drengjaskóla. Að auki verður þátttakendum skipt upp eftir aldri, reynslu og getu þannig að allir fái verkefni við hæfi.

Athugið að umsjón knattspyrnuskóla fyrir stúlkur verður í höndum meistaraflokks kvenna.

Útilífsnámskeið knattspyrnudeildar FRAM

Knattspyrnudeild Fram býður uppá útilífsnámskeið þar sem áhersla er á útiveru, vettvangsferðir, leiki og fótbolta. 

Um er að ræða eftirfarandi námskeið: 

Námskeið 1. 10. – 14. ágúst 2020  Útilífsnámskeið 9:00 til 12:00 Knattspyrnuskóli 13:00 til 16:00     8.000 krónur 8.000 krónur
Námskeið 2. 17. – 21. ágúst 2020  Útilífsnámskeið 9:00 til 12:00 Knattspyrnuskóli 13:00 til 16:00     8.000 krónur 8.000 krónur

Verð fyrir knattspyrnuskóla og útilífsnámskeið í eina viku er 15.000 krónur.

Verð fyrir knattspyrnuskóla í tvær vikur er 15.000 krónur.

Verð fyrir útilífsnámskeið í tvær vikur er 15.000 krónur.

Verð fyrir knattspyrnuskóla og útilífsnámskeið í tvær vikur er 29.000 krónur. Þátttakendur eiga að mæta með sitt eigið nesti

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!