fbpx
Auglýsing Flugeldar 2020 vefur

Flugeldasala Fram

Flugeldasala FRAM hefur verið starfrækt í vel yfir 35 ár við góðan orðstír. Flugeldasalan er umfangsmesta fjáröflun Handknattleiksdeildar FRAM
og skiptir sköpum að hún gangi vel fyrir rekstur meistaraflokka FRAM.

Við viljum því minna á flugeldasölu FRAM nú um áramótin og hvetja alla FRAMara til að styðja félagið og kaupa flugeldana hjá FRAM.

Við höfum ávallt boðið upp á fjölbreytt vöruúrval og gott verð. Allar gerðir af rakettum, litlar og stórar tertur, blys, gos og knöll, fjölskyldupokum og margt, margt fleira.

Salan fer núna fram í Félagshúsi Fram í Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 124, V/Dalskóla.

Handknattleiksdeild FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!