Línumaðurinn stóri Þorvaldur Tryggvason skrifaði undir nýjan 2 ára samning á dögunum. Þorvaldur kom til okkar fyrir tímabilið frá Fjölni og hefur staðið sig vel.
Við erum gríðarlega ánægð að hafa tryggt okkur krafta hans næstu tvö tímabil hið minnsta. Áfram Fram!