SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2021 Grafarholt og Úlfarsárdalur
Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir í Úlfarsárdal í sumar. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram í og við félagsheimli FRAM í Úlfarsárdal v/Dalskóla. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á æfingasvæði FRAM í Úlfarsárdal á sama svæði og íþróttaskólinn. Handboltanámskeiðið verður haldið í íþróttahúsi Ingunnarskóla.
ÍÞRÓTTASKÓLI FRAM
Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist. Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir. Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni.
Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga. Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi, einnig knattspyrnuskóla eftir hádegi og íþróttaskóla fyrir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti.
Boðið verður upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.
Námskeið 1. 10 -18. júní 09:00-16:00 (6 dagar)
Námskeið 2. 21 – 02. Júlí 09:00-16:00
Námskeið 3. 05 – 16. júlí 09:00-16:00
Námskeið 4. 19 – 23. júlí 09:00-16:00 (viku námskeið).
HANDBOLTASKÓLI FRAM
Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00 (börn fædd 2011-2014) og 13:00-16:00 (börn fædd 2007-2010) virka daga. Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi Ingunnarskóla. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.
Námskeið 1. 09 – 13. ágúst 13:00-16:00 (börn fædd 2011-2014).
Námskeið 2. 09 – 13. ágúst 09:00-12:00 (börn fædd 2007-2010).
KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM
Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri. Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 13:00-16:00 alla virka daga.
Boðið er upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl.12:15 og er það innifalið í gjaldinu.
Námskeið 1. 10 -18. júní 13:00-16:00 (6 dagar)
Námskeið 2. 21 – 02. Júlí 13:00-16:00
Námskeið 3. 05 – 16. júlí 13:00-16:00
Námskeið 4. 19 – 23. júlí 13:00-16:00 (viku námskeið).
Skráning
Skráning hefst 11. maí og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler skráningarkerfi FRAM.
Fram | Shop (sportabler.com)
Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 11.500.-
Íþróttaskóli 09:00-16:00 kr. 22.000.-
Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 6500.- (5 dagar).
Veittur er 10% systkinaafsláttur og einnig er veittur 10% afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki.
Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal og 533-5600 skrifstofa FRAM í Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst toti@fram.is og dadi@fram.is
Í von um gott samstarf í sumar
Daði Guðmundsson íþróttafulltrúi FRAM Grafarholti og Úlfarsárdal