*Uppfærð dagskrá*
Sumar og opnunarhátíð FRAM og íbúasamtaka Úlfarsárdals og Grafarholts hefst klukkan 12.00 sunnudaginn, 19. júní.
Almenningsíþróttadeild Fram hvetur alla til að koma og hlaupa með Fram-andann úr Safamýrinni upp í Úlfarsárdal, um 10 km leið. Leggjum stundvíslega af stað kl. 11:00 og allir mæta í bláu. Þeir sem vilja hlaupa með okkur síðustu metrana geta t.d. komið inn hjá Krónunni, verðum þar ca 12:10.
* Frítt í sund í Dalslaug á sjálfan opnunardaginn.
* Grillaðar pylsur og drykkir í boði!
Komið og takið þátt í gleðinni með okkur.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Knattspyrnufélagið FRAM og Íbúasamtökin

