Föstudaginn 9. september verður haldið bjórkvöld FRAM
Boðið verður upp á svokallaða “Bjórsinfóníu, bjór og leikar”. Tónleika þar sem sagnfræðingurinn Stefán Pálsson mun leiða okkur á léttum nótum og í leiðinni kynna fyrir okkur nokkrar forvitnilegar bjórtegundir af sinni alkunnu snilld.
Þar fá gestir að smakka á bjór frá hinum ýmsu stöðum, fræðast um uppruna, sérkenni og sérstöðu hvers bjórs fyrir sig.
Stefán er sérlega fróður um öl í allri sinni mynd og verður því spennandi sjá og smakka á því sem Stefán hefur upp á að bjóða. Aldrei að vita hvort einhverjar af þessu tegundum hafi tengingu við FRAM.
Miðaverð fyrir snarl og bjórskemmtun er aðeins kr. 7.000,-
Borðapantanir og forsala miða eru í síma 533-5600 dadi@fram.is og toggi@fram.is
Athugið að ekki verður hægt að kaupa miða við innganginn því panta þarf öl og veitingar fyrirfram.
Panta þarf miða og greiða í síðasta lagi þriðjudaginn, 6. september
ÁFRAM FRAM