fbpx
Súpa vefur

Fyrsti súpu dagurinn gekk vel að vanda

Við FRAMarar héldum í dag fyrsta súpufund vetrarins. Fyrsta skiptið okkar í nýjum húsi, nýjum sal og ég gat ekki séð betur en allir hafi verið sáttir.

Okkur telst til að það hafi verið  rúmlega 30  menn og konur sem gæddu sér  á þessari líka fínu súpu. Súpan í dag bara ljómandi.

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða og stemmingin góð í dag.

Næsti súpufundur verður fimmtudaginn 27. október 2022.

Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu í dag, erum mjög þakklát og hvað þessi uppákoma heppnast alltaf vel.

Takk fyrir komuna og sjáumst í október.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!