Þorrablót 113 – Grafarholts og Úlfarsárdals – laugardaginn – 28. janúar 2023
Þorrablót hverfis 113 verður haldið í íþróttahúsinu í Úlfarsárdal laugardaginn 28. janúar 2023. Slegið verður til heljarinnar veislu þar sem verður gómsætur matur & frábær skemmtun.
Húsið opnar klukkan 18.30 og hætt verður að hleypa inn kl. 19.30
Dagskrá:
Veislustjórar: Auðunn Blöndal og Steindi Jr.
Ballið: Bandmenn + atriði í vinnslu
Matur í boði Múlakaffi
*Þorramatur
*Steikarhlaðborð
*Veganmatur
Verð: 13.900 kr á manninn og eru aðeins 10 manna borð í boði.
Miðasala hefst í kvöld, fimmtudaginn 13. október kl. 20:00 á https://tix.is/is/event/14259/
Nú er um að gera að para sig saman á borð og vera tilbúin við tölvuna.
Allur ágóði er til styrktar Fram.
Innifalið í verði er ljúfengt hlaðborð sem inniheldur bæði Þorramat og steikarhlaðborð af flottustu gerð & skemmtidagskrá langt fram eftir nóttu.
ATH: 20 ára aldurstakmark!