fbpx
Súpa vefur góð

Fín súpa í dag

Við FRAMarar héldum í dag annan súpufund vetrarins. Það hefur því miður verið mikil óreyða á súpufundunum síðustu árin en nú horfir til betri vegar og ég myndi vilja sjá fleiri mæta í súpuna til okkar í Úlfarsárdalinn.

Okkur telst til að það hafi verið  rúmlega 30  menn og konur sem gæddu sér  á þessari líka fínu súpu.

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða og stemmingin góð í dag.

Næsti súpufundur verður fimmtudaginn 24. nóv. 2022.

Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu í dag, erum mjög þakklát hvað þessi uppákoma heppnast alltaf vel.

Takk fyrir komuna og sjáumst í nóvember.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!