fbpx
Skokkhópur agust 2021 vefur

Ný námskeið hjá Almenningsíþróttadeild Fram

Ný námskeið hjá Almenningsíþróttadeild Fram

Starfið hjá almenningsíþróttadeild Fram hefur sjaldan verið öflugra og hvetjum íbúa í Úlfársdal og Grafarholti að koma og vera með.

Þrek og þol eru fjölbreyttir tímar þar sem áhersla er lögð á alhliða þol- og styrktaræfingar. Unnið er með lóð, eigin líkamsþyngd, teygjur ofl og æfingar aðlagaðar að hverjum og einum. Vertu með í góðum félagsskap og ræktaðu líkamlega og andlega heilsu.

Skokkhópur Fram er með æfingar 5 x í viku en æfir undir leiðsögn reyndra þjálfara á mánudögum og fimmtudögum kl. 18:00. Frábær hreyfing í skemmtilegum félagsskap.

Fit í Fram er heiti á nýju verkefni fyrir eldri borgara. Æfingar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 9:00 – 10:00 í íþróttahúsi Fram. Nýtt námskeið byrjar 12. september.

Íþróttaskóli Fram fyrir 2-5 ára byrjar laugardaginn 16. september. Lögð er áhersla á fjölbreyttar æfingar í formi leikja, stöðva og áhalda sem er í samræmi við færni þeirra og getu. Börnin efla þol, vöðvastyrk, liðleika, viðbragð og samhæfingu um leið eflist sjálfstraust og félagsfærni í skemmtilegri samveru með foreldrum/forsjáraðilum og öðrum börnum.

Allir velkomnir að slást í hópinn og um að gera að láta fjölskyldu og vini vita. Nánari upplýsingar eru að finna inn á ALM.ÍÞRÓTTIR á fram.is.

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!