Fyrsta Kvennakvöld FRAM í Úlfarsárdal!
Kvennakvöldið verður haldið með glæsibrag þriðjudaginn 30. apríl í veislusal Fram.
Miðasala* er hafin og er hægt að kaupa miða hér: https://www.abler.io/shop/fram/vidburdir/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6Mjc1OTc=
Nú er tækifærið að hitta nágranna, vinkonur, leikmenn, mömmur, ömmur og frænkur þeirra en einnig styðja frábæra félagið okkar FRAM.
Húsið opnar 18:30 með fordrykk frá Búbblubarnum. Fordrykkur verður í boði hússins til 19:00 en þá hefst dagskráin.
Glimmerbarinn tekur á móti þér og sér til þess að þú verðir vel skreytt um kvöldið.
Fyrirspurnir varðandi mat og borðapantanir á kvennakvoldfram@gmail.com
Þetta verður kvöld sem allar konur í hverfinu munu tala um – ekki láta þig vanta!
*Miðaverð í forsölu er 11.900 kr. og stendur til 1. apríl. Almennt miðaverð 12.900 kr.