Marel semur við Fram til þriggja ára!
Marel Baldvinsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Fram. Marel, sem er aðeins 17 ára gamall, er uppalin hjá Fram og hefur skarað fram úr með yngri flokkum félagsins. Hann átti stóran þátt í sigri U-liðs Fram í Grill-deildinni á nýliðnum vetri og lék einnig með meistaraflokki Fram á síðari hluta tímabilsins. Þá hefur hann einnig átt sæti í landsliðum yngri flokka, nú síðast í U-18 ára landsliði.
Við hlökkum til að fylgjast með Marel í framtíðinn og óskum honum til hamingju með samninginn.
Einar Jónsson, þjálfari meistaraflokks karla;
„Marel er einn af þeim leikmönnum sem hafa náð góðum árangri með yngri flokkum Fram og er í dag einn af okkar efnilegustu leikmönnum. Hann kom óvænt inn í meistaraflokk félagsins í vetur og stóð sig frábærlega vel. Það verður gaman að fylgjast með Marel á næstu árum og sjá hann leggja sitt af mörkum hjá okkar góða félagi.“
