fbpx
Júlía Margrét Ingadóttir banner

Júlía Margrét Ingadóttir semur við Fram!

Júlía Margrét Ingadóttir hefur samið við Fram til tveggja ára, eða út tímabilið 2026.

Júlía er ungur og mjög efnilegur miðjumaður sem er uppalin hjá Stjörnunni þó hún sé af miklum Fram ættum. Hún spilaði seinni hluta síðasta tímabils á láni hjá Fram og stóð sig frábærlega svo við vitum vel hvað við erum að fá og erum virkilega spennt fyrir að fá hana varanlega yfir til félagsins.

Óskar Smári, þjálfari meistaraflokks kvenna, er sáttur og rúmlega það:

“Ég er hæst ánægður að Júlía sé alfarið orðin leikmaður Fram. Hún gerði mikinn gæfumun þegar hún kom á láni á miðju tímabili í sumar og spilaði stórt hlutverk í góðum árangri liðsins seinni hluta tímabilsins. Það er mikilvægt fyrir félagið að við fáum inn ungar og efnilegar stelpur sem geta látið að sér kveða strax, og fer Júlía í hóp þeirra leikmanna. Það er mikil tilhlökkun í mér að halda áfram að vinna með henni og sjá hana vaxa og dafna innan sem utan vallar.” Velkomin í dal draumanna Júlía!

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!