fbpx
Mfl.kv. fyrsti leikur gegn Þrótti

D-vítamín

Heilbrigðisstarfsmenn hafa um langt árabil haft áhyggjur af því að vegna hnattstöðu landsins og skammdegisins njóti íslenska þjóðin ekki nægrar sólarbirtu. Fyrir utan þau neikvæðu andlegu áhrif sem svartnætið getur haft, þá geta líkamlegu afleiðingarnar líka verið slæmar. Til að tryggja að líkaminn fái nóg D-vítamín hefur embætti Landlæknis lagt til ýmsar mögulegar ráðstafanir. Ein er sú að borða hreinlega D-vítamíntöflur. Önnur er að neyta mikils af feitum fiski og fiskiolíum. Sú þriðja og áreiðanlegasta er að mæta á fótboltaleiki í Dal draumanna.

Framkonur léku í kvöld sinn fyrsta heimaleik í efstu deild frá árinu 1988. Á fjórða hundrað manns mættu og nutu veðurblíðunnar og átu bestu hamborgarana og smekklegast framreiddu pizzusneiðarnar í bænum. Fréttaritarinn var með fyrra fallinu. Hann tók strikið í fínumannasalinn þar sem velunnar liðsins og fjölskyldur leikmanna voru samankomin. Óskar þjálfari ávarpaði mannskapinn og útskýrði leikplanið. Hann lagði ríka áherslu á að sínar konur yrðu að mæta óttalausar til leiks. Við myndum leggja mikla áherslu á föst leikatriði – hornspyrnur þá sérstaklega – jafnt í sókn  og vörn. Fínt plan.

Liðsuppstillingin var einhvers konar 4-4-2 frekar en 4-3-3 afbrigði. Elaina í markinu. Olga og Dominique – betur þekkt einfaldlega sem Dom – í miðvörðum. Freyja og Sylvía í bakvörðum. MacKenzie aftast á miðjunni með Unu og Lily til beggja handa. Ólína Ágústa í broddi miðjunnar og Alda og Murielle frammi. Stefnan var hiklaust sett á sigur og með það hélt Fréttaritarinn glaðbeittur niður í stúku ásamt púlaranum Garðari og júnætedmanninum Birni úr hverfaráðinu. Þeir voru mjög misbrattir þegar spjallið barst að enska boltanum. Fréttaritarinn þagði og hugsaði sitt.

Okkar konur byrjuðu af miklum krafti sem virtist slá gestina út af laginu. Strax á annarri mínútu átti Freyja frábæra stungu inn á Murielle sem komst ein á móti markverði andstæðinganna, en náði ekki að koma boltanum fram hjá henni. Þetta reyndist okkar besta færi í leiknum og má velta því fyrir sér hvernig leikurinn hefði kunnað að þróast ef það hefði endað með marki. Fyrstu fimmtán mínúturnar voru eign okkar með húð og hári, en eftir það byrjuðu FH-konur að vinna sig inn í leikin – væntanlega með skýr fyrirmæli að heiman um að það væri ekki í boði að tapa þriðja leiknum fyrir Fram á fjórum dögum!

Sóknarlotur FH hófust um miðjan fyrri hálfleikinn. Það voru vondu fréttirnar. Góðu fréttirnar eru þær að Elaina er besti markvörðurinn í þessari deild og átti eftir að sýna það trekk í trekk. Mesta ógnin skapaðist úr skyndisóknum FH, einkum upp kantana, sem gátu reynst þeim mun hættulegri þar sem varnarlína okkar lá mjög ofarlega þegar liðið reyndi að sækja. Þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik gerðist nákvæmlega þetta. Framarar höfðu verið að skapa hættu við FH-markið og fengu stórhættulega hornspyrnu í kjölfarið – en um leið og FH-konur unnu boltan brunuðu þær fram með ógnarhraða og splundruðu fáliðaðri vörninni, 0:1.

Fleira bar ekki til tíðinda í fyrri hálfleik og áhorfendur flúðu í skuggann í hléi. Fram gerði breytingu í byrjun seinni hálfleiks. Katrín Erla kom inná fyrir Freyju. Það breytti þó litlu um gang leiksins. Kornungar og fimar FH-stúlkur tóku öll völd. Afbragðsframmistaða Elainu og ekki síður Dom í hjarta varnarinnar héldu okkur þó inni í leiknum, þar til á 72. mínútu þegar gestirnir tvöfölduðu forystuna með marki sem var eins og ljósrit af því fyrra. Boltinn tapaðist á miðjunni og örfáum sekúndum síðar var hann kominn í fremstu víglínu þar sem FH-ingur skoraði með skoti alveg úti við stöng (það er eina leiðin til að koma knettinum framhjá okkar konu).

Sóknir Framara voru bitlitlar og framherjaparið ekki alveg sjálfu sér líkt í dag. Hornspyrnurnar voru vissulega hættulegar, eins og lagt var upp með, en það var þó eins og vantaði aðeins upp á kraftinn til að ógna af alvöru. Nýjasti leikmaðurinn, Sara Svanhildur, kom inná þegar um hálftími var eftir og átti fína spretti. Tvöföld lokaskipting í blálokin kom of seint til að breyta neinu. Lokatölur urðu 0:2 tap, sem er ekki byrjunin sem við vildum sjá – hvað þá með strembinn leik gegn Blikum í næstu umferð – en við vissum alltaf að þetta yrði langhlaup og það er engin ástæða til annars en að halda í bjartsýnina og ferðalagsins áfram. Spurning samt hvort sjoppan gæti ekki stillt upp einhverju sniðugu tvennutilboði næst: hamborgari og sólarvörn í einum pakka?

Stefán Pálsson

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!