fbpx
Gríptu kemur út 13. mars (61)

Ásdís Guðmundsdóttir skrifar undir hjá Fram

Handknattleiksdeild Fram tilkynnir með ánægju að Ásdís Guðmundsdóttir hefur skrifað undir samning við félagið fyrir næsta keppnistímabil.

Ásdís er öflug og reynslumikil handknattleikskona sem hefur á ferli sínum leikið með sterkum félögum bæði hér heima og erlendis. Hún lék áður með KA/Þór og ÍBV í efstu deild kvenna á Íslandi, auk þess sem hún hefur leikið með HF Skara í Svíþjóð. Þá á hún að baki tíu landsleiki fyrir íslenska landsliðið auk fjölda landsleikja með yngri flokkum.

Ásdís mun styrkja öflugt lið Fram innan sem utan vallar á komandi tímabili.

Velkomin í Fram, Ásdís!

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!