Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekssjóð Fram
Knattspyrnufélagið Fram hefur nú opnað fyrir umsóknir í Afrekssjóð Fram, en sjóðurinn veitir styrki til afreksfólks félagsins sem tekur þátt í landsliðsverkefnum og öðrum alþjóðlegum afreksverkefnum sem krefjast fjárhagslegrar aðkomu.
Sjóðurinn er fjármagnaður með ágóða af þorrablóti félagsins og er ætlað að styðja við íþróttafólk Fram sem sækir keppnir erlendis, svo sem Norðurlandamót, Evrópumót og heimsmeistaramót. Einnig er hægt að sækja um styrki vegna einstakra afrekstengdra verkefna, sé um verulega árangurstengd tækifæri að ræða, t.d. þátttöku í Ólympíuleikum.
Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári og skila þarf umsóknum á þar til gerðu eyðublaði á heimasíðu Fram, eigi síðar en þremur mánuðum eftir að móti lýkur.
Athygli er vakin á því að eingöngu þeir sem stunda sína íþrótt innan raða Fram geta fengið styrk.
Við hvetjum allt afreksfólk Fram til að kynna sér reglur sjóðsins og sækja um innan tilskilins tíma.
Sjá nánari upplýsingar og umsóknareyðublað á https://fram.is/afrekssjod-knattspyrnufelagsins-fram/
