Sérfræðingar mæla með því að fólk sem lendir í slæmum upplifunum í flugi láti ekki langan tíma líða þar til það flýgur að nýju. Hugmyndin er sú að losna við yfirvofandi flughræðslu.
Fréttaritari Framsíðunnar var kýldur í magann í hádeginu þegar uppáhaldslið hans í enska boltanum féll niður um deild. Þetta er tráma og mun taka fréttaritarann drjúgan tíma að jafna sig. Minnugur ráðanna frá flugsérfræðingunum ákvað hann hins vegar að keyra rakleitt upp í Dal draumanna til að horfa á fótboltaleik – sem vonandi myndi ekki enda í sömu hörmungum – í þeirri von að það gerði hann ekki varanlega frábitinn íþróttinni.
Fréttaritarinn – örlítið beygður og lítill í sér – mætti á Lambhagann rétt áður en flautað var til leiks. Stubbs-appið í símanum var með skæting svo hann komst ekki inn fyrr en seint um síðir. Það var frekar fámennt á vellinum – sem skýrðist af því að gestirnir tóku varla nema 10-15 manns með sér. Á leiðinni uppeftir hugsaði fréttaritarinn með sér að kannski hefði verið sniðugt að grípa með sér fínu sólgleraugum – hann ákvað þó að sleppa því enda alinn upp við að eina fólkið sem notaði sólgleraugu væri Sjakalinn Carlos og Yoko Ono. Þetta reyndust grundvallarmistök enda bongóblíða og steikjandi sól allan tímann.
Mótherjar okkar í dag voru Austfirðingarnir í FHL – sem er ekki nafnið á slapri póstþjónustu heldur skammstöfun fyrir Farðabyggð/Hött/Leikni – Blákalt stöðumat segir okkur að ætli Framarar sér að hanga uppi í úrvalsdeild í haust þá kallar það helst á fullt hús stiga gegn FHL. Þannig er bara þessi grimma veröld…
Óskar Smári stillti upp í tígul í dag. Elaina í markinu að venju, Telma og Olga í miðvörðum, Kamila Picet (Kam) og Dominique (Dom) í bakvörðum, Mackenzie, Una Rós, Sara og Lily á miðju og köntum. Murielle og Alda frammi. Sóknarsinnuð uppstilling í leik sem varð að vinnast. Fréttaritarinn hlammaði sér niður í stúkunni miðri. West Ham-maðurin Sigurður Freyr fann sér sæti til hægri handar en Ívar Guðjónsson til vinstri handar. Saman sátu þrímenningarnir og steiktust í þeim hitapotti sem stúkan í Úlfarsárdal er.
Framarar byrjuðu með látum og voru miklu sterkari fyrsta hálftímann eða rúmlega það. Gestirnir voru ltilir í sér og litil fyrirstaða þegar kom að því að skáka þeim til og frá. Strax eftir fjórar mínútur komst Alda upp að endamörkum og vippaði fyrir markið þar sem Sara skallaði boltann að marki – hugsanlega sem fyrirgjöf á Murielle en boltinn sveif vandræðalítið framhjá markverði Austfirðinga, staðan orðin 1:0. Um tíu mínútum síðar varð staðan 2:0 efir að Framliðið fékk hornspyrnu, upp í því barst boltinn á Unu Rós sem virtist ætla að spila sig inn í tóm vandræði, en lék fram hjá hverjum mótherjanum á fætur öðrum og náði loks einfaldri sendingu á Öldu sem kom aðvífandi og þrumaði í netið – staðan orðin 2:0 og yfirburðir Fram algjörir.
Gestirnir sáu ekki til sólar fyrsta hálftímann – sem er sérkennilegt þar sem aðrir vallargestir sú fátt annað en sólina sem bakaði þá meðan á leiknum stóð. Undir lok fyrri hálfleiksins létu okkar konur þó óþarflega mikið undan síga og dætur Norðfjarðar og nærsveita náðu nokkrum sóknum,þar sem Elaina þurfti að taka á hinum stóra sínum í það minnsta einu sinni.
Eftir sívaxandi sóknarþunga gestanna fögnuðu Framarar leikhlénu. Vallarþulur hafði tilkynnt að líklega væri búið að steikja hamborgara fyrir hvern vallargest svo fréttaritarinn gat ekki annað gert en að mæta og kaupa sér kjötloku. Borgarinn var góður að venju.
Óskar virðist skiljanlega hafa lagt upp með að drepa leikinn í seinni hálfleik og afleiðingin varð sú að mjög fátt bar til tíðinda eftir hlé. Framsóknin fékk fáein hálffæri þar sem Alda og Murielle komu við sögu en að öðru leyti gerðist sáraliðir. Fram gerði skiptingar á 62. mínútu (tvöföld), 76. Mínútu og 89 mínútu (tvöföld) en áhrifin reyndust takmörkuð. Elaina átti tvö frábær úthlaup og tryggði öðrum fremur að liðið héldi hreinu í leiknum.
Þegar fjórar mínútur í uppbótartíma voru að baki flautaði dómarinn til leiksloka. Vallarþulur hafði skömmu fyrr valið Öldu konu leiksins. Fréttaritarinn getur svo sem skrifað upp á slíkt val en hefði sjálfur tilnefnt einhverja út varnartríói Framara, t.d. Olgu sem var hörkugóð eða Unu sem átti mjög flottar rispur í leiknum. Framliðið er skemmtilegt en þarf að þétta miðjuna svo slitni ekki of mikið á milli hennar og sóknarinnar eins og gerðist stóran hluta seinni hálfleiks. Næsti leikur er gegn Víkingum á föstudagskvöld. Þangað mæta allri góðir menn.
Stefán Pálsson