fbpx
Áhorfendur 2024

Þar sem Helmút kól

Heitasti staður á jarðríki er innan í Hatting-pítubrauði sem er nýkomið úr brauðristinni. Sá kaldasti er stúkan á Stjörnuvellinum. Þetta eiga allir að vita. Hann var því skelfingu lostinn Víkingurinn með Framtrefil um hálsinn og bara í léttum blazer sem hitti fréttaritarann, Skjaldsveininn og Kristján Hnífsdalstrymbil í ölstofu Stjörnumanna fyrir leikinn í kvöld. Hann hafði verið boðaður í hamborgara og fótboltagláp heima hjá Sævari Guðjónssyni og hélt í einfeldni sinni að fótboltaglápið yrði í sjónvarpinu en ekki á kaldasta knattspyrnuleikvangi í heimi. Hann átti aldrei möguleika.

Eftir að hafa reynt að stappa stálinu í blazer-manninn tyllti fyrrum forsætisráðherra lýðveldisins og varnartröll úr Stjörnunni sér niður við Framborðið. Hann rifjaði upp nokkra leikmenn sem spilað höfðu fyrir bæði lið. Allir sameinuðust um að minnast Ingólfs Ingólfssonar með hlýju – ó, hvað hann var góður á besta deginum sínum.

Stjarnan er lið þar sem þú veist aldrei hvað þú færð: stórleik eða flopp. Garðbæingar eru líka kunnir fyrir að hræra stöðugt í byrjunarliðinu sínu. Framarar gerðu líka breytingar frá tapinu gegn Víkingi. Viktor stóð í markinu. Kyle, Sigurjón, Þorri og Israel mynduðu öftustu varnarlínu, Kennie og Már á köntunum. Fred og Tibbling á miðjunni. Vuk og Gummi Magg frammi.

Framliðið byrjaði bærilega. Kennie átti skalla yfir markið strax á sjöttu mínútu eftir hornspyrnu. Fram fékk aragrúa horna í leiknum en fæst þeirra skiluðu miklum árangri og vandræðalega mörg náðu ekki yfir fyrsta mann. Eftir þetta unnu heimamenn sig inn í leikinn og áttu stuttan kafla þar sem þeir stjórnuðu spilinu. Litlu mátti muna að þeir kæmust yfir eftir snarpa sókn en Þorri bjargaði nánast á marklínu.

Eftir þetta urðu algjör þáttaskil í leiknum og Framarar tóku völdin. Liðið átti góða samleikskafla en alltaf vantaði herslumuninn að koma boltanum í netið. Vuk var sérlega sprækur á þessum kafla og Kennie allt í öllu í sóknarupbyggingunni. Tibbling átti skot úr góðu færi rétt framhjá og Vuk var hárbreidd frá því að skora eftir góða sendingu frá Gumma. Framarar á pöllunum voru sáttir, en klóruðu sér í kollinum yfir því hvernig liðinu væri enn ekki búið að takast að skora.

Gjörsamlega þvert á gang leiksins tókst heimamönnum að galopna Framvörnina á 41. mínútu og ná forystunni. Framarar virtust staðráðnir í að jafna fyrir hlé og strax á næstu mínútu taldi Fred sig hafa skotið boltanum í hönd Stjörnumanns innan vítateigs. Tveimur mínútum síðar tókst Fred glæsilega að halda boltanum inná vellinum við endamörk, sendi fyrir en Tibbling náði ekki boltanum. Hálfleiksflautan gall og svekktir en ekkert alltof ósáttir Framarar hlóðu batteríin – með þessu áframhaldi hlytum við að jafna í það minnsta! Maðurinn í blazernum var gufaður upp.

Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum. Vuk var augljóslega felldur innan vítateigs strax á þriðju mínútu en uppskar ekki annað en gult spjald fyrir mótmæli. Augljós mistök og afdrifarík. Sex mínútum síðar slapp Mási einn í gegn og þrumar að marki sem söng í stönginni – mögulega besta færi leiksins. Eftir þetta atvik fóru hjólin eitt af öðru að detta undan vagni Framliðsins. Stjörnumenn fengu nokkur dauðafæri á silfurfati, fyrst eftir að Kyle missti boltann sem aftasti maður en leikmaður stjörnunnar vippaði yfir markið úr dauðafæri. Viktor bjargaði okkur svo nokkrum sinnum í röð, þar af stórkostlega upp úr hornspyrnu þegar rétt um hálftími var eftior.

Þjálfarateymið gerði sínar fyrstu breytingar. Gummi og Már fóru af velli fyrir Róbert og Kristófer. Síðar átti Alex eftir að leysa Vuk af hólmi og enn síðar kom Halli inná fyrir Israel. Engar þessara skiptinga megnuðu að hrista mikið upp í leiknum og eftir því sem fram leið virtist sífellt meira draga af Framliðinu. Sendingar urðu ónákvæmari og marklitlar kýlingar tóku við af hnitmiðaðra spili. Síðasta kortérið virtust okkar menn aldrei líklegir til að skora og raunar alls ekki sjálfum sér líkir. Það var því ekkert sérlega óvænt þegar Stjarnan jók forystuna í 2:0 eftir kæruleysislegan varnarleik okkar manna undir lokin.

Viktor var okkar besti maður – þótt það sé aldrei gott að þurfa að útnefna markvörðinn sem besta leikmanninn í tapleik. Kennie stóð fyrir sínu og ýmsir aðrir áttu góða spretti en þeir voru of fáir og of langt á milli þeirra. Næsti deildarleikur er gegn toppliði Vestra og í millitíðinni er bikarleikur satans á móti Akureyringum. Fréttaritarann langar norður og líklega mun skynsemin grípa í taumana. Fram að því höfum við bikarleik hjá stelpunum til að hlakka til á mánudagskvöldið.

Stefán Pálsson

 

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!