fbpx
Alda gegn FHL

Með höfuðið hátt…

Um daginn hlustaði Fréttaritari Framsíðunnar á hlaðvarp á vegum Fótbolta-punktur-net um íslenska kvennaboltann. Þátturinn var tekinn upp eftir fyrstu þrjár umferðir Bestu deildarinnar og niðurstaða umsjónarmanna var sú að Framliðið næði ekki máli, væri langlélegasta lið deildarinnar og dæmt til að húrra aftur niður í Lengjuna. Þetta reyndist sannarlega frábært öfugt-jinx og í kjölfar þáttarins hefur Framliðið nú unnið tvo leiki í röð. Vonandi er Toggi Pop þegar farinn að bera fé á hlaðvarpsstjóranna til að fá þá til að spá okkur áframhaldandi óförum!

Fréttaritari Framsíðunnar lét eldri soninn skutla sér í Fossvoginn í góðum tíma fyrir leik kvöldsins. Víkingar, vinir okkar og litlu bræður, höfðu boðað hátíðarhöld í tilefni af vígslu nýrrar stuðningsmannaaðstöðu, Lárustofu – sem kennd er við Láru Herbjörnsdóttur, sem var móðurmynd Víkings um áraraðir. Það er ekki hægt annað en að dást að félögum sem kunna að rækta sögu sína á fallegan hátt. Víkingur er og hefur alltaf verið eitt af uppáhaldsfélögum fréttaritarans og samkoman í dag varð bara til að styrkja þau tengsl.

Ragnar Kristinsson, konferentzráð og heiðursfélagi Krikketsambandsins var mættur á völlinn með fréttaritaranum. Hann er Víkingur og fyrir vikið var valið sæti í miðri Víkingsstúkunni. Ekki það að margir hafi verið mættir í skítaveðri, súld og hríðarhaglanda á köflum. Byrjunarlið Fram var svipað og verið hefur. Elaina í markinu. Miðvarðaparið Telma og Olga. Kam og Dom í bakvörðum. Fyrirliðinn Mackenzie, Una Rós Lily og Katrín Erla (inn fyrir Söru) á miðju og köntum. Murielle og Alda frammi.

Með flatan Lite í plastglasi hlammaði fréttaritarinn sér niður í Víkingshluta stúkunnar. Þetta kallaði á viðbrögð, s.s. frá Garðari fyrrum sendiráðsbílstjóra sem gekk framhjá og gaf skýr merki um vanþóknun sína. Júdasarkindin sem fréttaritarinn er sagði ekki múkk fyrr en líða tók á leikinn. Framarar fengu fyrsta alvöru færið á níundu mínútu en skot frá Öldu var auðveldlega varið.

Bæði lið skiptust á að sækja en hvorugt liðið skapaði sér mikið af viti. Víkingar voru almennt sterkari fyrsta hálftímann en eftir það jöfnuðust leikar töluvert. Færi Framara komu helst úr föstum leikatriðum – hornspyrnum og aukaspyrnum.

Á 35. mínútu, um það leyti sem aðeins fór að rofa til í veðrinu, sluppu Framarar hratt í gegnum Víkingsvörnuna. Alda sendi á Kam sem stakk af sér Víkingsvörnina áður en hún lagði boltann til hliðar á Öldu, sem átti hnitmiðað skot í fjærhornið, 1:0. Frábær afgreiðsla og Framarar allt í einu komnir með forystuna í leiknum.

Eftir að hafa fagnað markinu vandræðalega innilega í miðri Víkingsstúkunni ákvað fréttaritarinn að bregða sér á salernið og planta sér í kjölfarið Framaramegin. Það var heillaspor enda kom í ljós að félagi Garðar – sem sat í næstu röð fyrir neðan Daða íþróttastjóra og við hliðina á Sigurði Frey, var með sinn eigin markapela og með mjög rausnalegar útdeilingarreglur. Frá þessum stað vallarins horfði fréttaritarinn á Framara eiga fáeinar þokkalegar sóknir – en á lokamínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks náðu heimakonur lúmskri sendingu fyrir markið – Elaina átti fágætt slæmt úthlaup og Víkingar stönguðu í markið, 1:1. Sekúndum síðar var flautað til hálfleiks og allir héldu neðan þilja til að ræða leikinn.

Fram gerði sína fyrstu skiptingu við byrjun seinni hálfleiks. Lily Farkas fór útaf fyrir Eyrúnu Völu í hreinni skiptingu. Elaina var á tánum í byrjun seinni hálfleiksins og varði í tvígang vel. Hún er augljóslega besti markvörður þessarar deildar og bara flón sem viðurkenna það ekki. Stundarfjórðungi síðar átti Dom höruskot rétt framhjá marki Víkinga.

Sjötugasta mínúta leiksins reyndist afdrifarík. Fréttaritarinn hafði sest aftur hjá Víkingunum eftir hlé, en þurfti snögglega að bregða sér á salernið. Hann hljóp út úr stúkunni og heyrði um leið stuðningsmenn ókyrrast – um leið og hann náði að gægjast fyrir stúkuhornið sá hann Murielle renna boltanum vandræðalaust í netið, 2:1. Endursýningar í sjónvarpi leiddu í ljós að Alda hafði átt stoðsendinguna. Hlaðvarpsgaurinn um daginn hafði einmitt útskýrt í löngu máli að Murielle og Alda væru of líkir leikmenn til að virka saman í liði. Hlaðvarpsgúbbi 0 : Veruleikinn 1.

Eftir markið drápu Framkonur leikinn af mikilli fagmennsku. Elaina fékk gult spjald fyrir tafir þar sem ljóst mátti vera að vindurinn á vellinum olli því að hún gat ekki tekið markspyrnu – en okkur gæti varla staðið meira á sama sem stendur. Katrín Erna fór útaf fyrir Júlíu Margréti í uppbótartíma en það breytti litlu fyrir gang leiksins.

Að lokum var flautað til leiksloka og frábær þrjú stig komu í hús. Þetta gæti reynst leikurinn sem skipti sköpum varðandi tímabilið. Ziggi-zagginn hefur oft verið tekinn fyrir framan stærri hóp og augljóslega var veðurblíðan ekki sú sama og í Dal draumanna, en það má samt auðveldlega venjast þessu!

Stefán Pálsson

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!