fbpx
Liðið

Þessu fagna allir góðir menn!

Í ársbyrjun 2022, á undirbúningstímabilinu fyrir Íslandsmótið, mættu Framkonu liði Knattspyrnufélags Hlíðarenda, venslaklúbbs Vals. Við töpuðum 19:0. Óskar Smári og Aníta Lísa, sem tekið höfðu að sér þjálfun Framliðsins í þriðju eftstu deild, spurðu sig vafalítið spurninga um hvern fjandann þau hefðu þvælt sér útí? En Framliðið óx og styrktist. Um haustið fór það upp um deild sem meistari og skildi KH eftir.

Það er með nokkrum ólíkindum að örfáum misserum síðar hafi þetta sama Framlið, enn undir stjórn Óskars Smára, verið í þeirri stöðu að tryggja sæti sitt í Bestu deild kvenna með tvær umferðir enn eftir. Sigur í kvöld á móti sambræðingsliði Austurlands þýddi að Fram væri öruggt um sæti meðal þeirra bestu að ári – stórkostlegur áfangi ef haft er í huga hversu borthættur kvennaboltinn hefur verið innan félagsins um langt árabil.

Fréttaritarinn og Kritján Freyr Hnífsdalstrymbill mættu saman á leikinn. Frú Hnífsdalstrymbill tók að sér að skutla þeim uppeftir. Þegar var gengið upp í fínumannastúkuna þar sem Daði úr Úlfunum stýrði bjórdælunni. Almenn samstaða ríkti um að nú væri að duga eða drepast.

Byrjunarliðið var á þá leið að Ashley stóð í markinu. Olga Ingibjörg og Emma Kate voru í miðvörðunum og Dom og Kam bakverðir. Mackenzie Smith aftast á miðjunni, Hildur María og Ólína Ágústa þar fyrir framan. Eyrún Vala og Una Rós hvor á sínum kanti og Murielle frammi. Alda var fjarri góðu gamni eftir að hafa stangað gínu á æfingu.

Eftir stíft sötur í forréttindaherberginu lá leiðin niður í stúkuna sem var ágætlega mönnuð þrátt fyrir að leiktímanum hefði verið skákað til. Fréttaritarinn sat við hlið Kristjáns Freys, Sigurðar Freys og Garðars uppgjafarsendiherrabílstjóra. Þetta var harðsnúinn kjarni, hélt línuverðinum vel við efnið og efndi reglulega til stuðningssöngva.

Fram byrjaði mun betur en skapaði sér fátt verulega hættulegt. Una og Murielle komu sér báðar í prýðileg færi á fyrsta stundarfjórðungnum en skoruðu ekki. Á 27. mínútu fengur Framarar horn. Upp úr því barst boltinn utarlega í hornið á Olgu sem skoraði með snotru skoti, 1:0. Fimm mínútum síðar komst Eyrún Vala, í hörkufæri en skot hennar rataði beint á markvörð.

Eftir 39. mínútna leik leit mark leiksins dags síns ljós. Dom fékk boltann rétt fyrir utan vítateig og sendi knöttinn beint á kollinn á Murielle sem var illa völduð og skallaði inn af stuttu færi. Murr okkar er enn í hörkubaráttu um að tryggja sér bronsskóinn en þarf að berjast við að Blikakonur fá tveimur leikjum meira til þess!

Fyrri hálfleikur fjaraði út og fréttaritarinn og félagar héldu aftur í efri byggðir. Þar var Gummi Magg, ferskur frá því að bjarga Blikum gegn FH, og lét sér fátt um varnarleik austfirðinga finnast. Hann tók undir með fréttaritaranum um að rétt væri að Murielle skoraði 3-4 mörk til að eiga séns á bronsskónum í þessu ósanngjarna kerfi.

Seinni hálfleikur var bragðdaufur framanaf. Fram virtist sátt við forskotið og gestirnir stilltu sig um að ýta um of á víglínu óvinarins. Á 63. mínútu kom svo fyrsta skiptingin þar sem Ólína Ágústa fór útaf fyrir Katrínu Erlu.

Eftir afar tíðindalítinn seinni hálfleik leit þriðja markið dagsins ljós og skyndilega var leikurinn búinn. Una stakk boltanum í gegn á Eyrúnu sem skoraði snyrtilega, 3:0. Gestirnir voru algjörlega slegnir út af laginu og tveimur mínútum síðar skoraði Una eftir fallega sendingu frá Muirelle, staðan orðin 4:0 og örlögin ráðin.

Framarar voru nær því að bæta við mörkum það sem eftir leið. Fjórar skiptingar bættu litlu við en Hildur og Eyrún og svo Olga og Dom fóru af velli fyrir Freyu, Sylvíu, Ólínu Sif og Karítas á lokamínútunum. Vallarþulurinn útnefndi Unu besta Framkvenna, sem mátti til sanns vegar færa en fréttaritarinn hefði líka tilnefnt Eyrúnu Völu.

Lokatölur 4:0. Fram er tryggt í efstu deild, sem gleður fréttaritarann óstjórnlega þar sem hann missir af leikjunum um næstu helgi. Þar má þó búast við frumlegum liðsuppstillingum til að gefa sem flestum tækifæri.

Stefán Pálsson

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!