fbpx
dómaranámskeið - banner

Dómaranámskeið Fram – 10. febrúar kl. 19:00

Barna- og unglingaráð Fram í knattspyrnu boðar til ókeypis dómaranámskeiðs fyrir alla 15 ára og eldri sem hafa áhuga á að taka þátt í mikilvægu og skemmtilegu starfi fyrir félagið. Námskeiðið er haldið í samstarfi við KSÍ og kennari verður reyndur dómari úr efstu deild.

📍 Staður: Bíósalurinn, Íþróttamiðstöð Fram (1. hæð)
🗓 Dagsetning: Þriðjudagur 10. febrúar
Tími: Kl. 19:00
Lengd: Um 2 klst. – lýkur með stuttu prófi

Iðkendum og liðum innan Fram fer sífellt fjölgandi. Til þess að geta haldið úti heimaleikjum yngri flokka með góðum hætti er nauðsynlegt að efla og fjölga í hópi dómara. Öflugt dómarastarf er forsenda sanngjarns, öruggs og jákvæðs keppnisumhverfis.

Að vera dómari er bæði lærdómsríkt og gefandi sjálfboðaliðastarf. Unglingar fá tækifæri til að þróa ábyrgð, sjálfstraust og leikskilning, á meðan foreldrar og aðrir áhugasamir geta lagt sitt af mörkum til félagsins og tekið virkan þátt í uppbyggingu starfsins.

Við hvetjum iðkendur í 2. og 3. flokki, foreldra og Framara á öllum aldri til að taka þátt.
Saman tryggjum við áframhaldandi vöxt og sterkt starf barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Fram.

📩 Skráning fer fram með tölvupósti á: dadi@fram.is

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!