fbpx
Mark gegn KAÞór

Hlustarverkur

Eini augljósi kosturinn við að hafa Hafnarfjarðalið í efstu deild í fótbolta eða parketglímu er að það gefur manni tilefni til að kíkja í Fjarðarkaup sem er eins og allir vita skemmtilegasta kjörbúðin á höfuðborgarsvæðinu. Fréttaritari Framsíðunnar lét ekki gott tækifæri úr hendi sleppa og fór í innkaupaleiðangur fyrir leik FH og Fram í Kaplakrika í dag. Heimsóknin olli smávonbrigðum, því ekkert hrossakjöt var á boðstólum í kjötborðinu. Nautasnitsel varð fyrir valinu í staðinn, en það er mun síðri ferfætlingur. Verslunarferðin reyndist þó hápunktur dagsins.

Hitamælirinn í bílnum lofaði ellefu gráðu hita og fréttaritarinn ákvað að skilja peysuna eftir í metanfáknum, sem reyndust mistök. Það var blaut rigning og gjóla, sem kom þó ekki að sök í stúkunni fínu. Spurning hvort FH-ingar ættu ekki að prófa að selja bæjarsjóðnum hana fyrir vænan skilding?

Fréttaritarinn hlammaði sér niður í gestaendanum, rétt við hliðina á Gumma Torfa, Magga liðstjóra og Elínu: spekingar spjalla. Orkus var í marki. Harpa, Emma Youn og Gilmore aftastar. Katrín og Freyja bakverðir. Hildur Brookelynn og Sara Svanhildur á miðjunni. Hamlett og Alda frammi. Kunnugleg uppstilling frá síðustu leikjum.

Vallarþulurinn var gríðarlega peppuð. Það átti bara eftir að ágerast.

Leikurinn byrjaði rólega og nánast ekkert sem bar til tíðinda fyrstu tíu mínúturnar. Eftir það byrjuðu heimakonur að taka völdin og áttu skot naumlega framhjá á tólftu mínútu. Eftir nokkuð harða hríð næstu mínúturnar kom fyrsta markið eftir stundarfjórðung, þar sem boltanum var potað inn af stuttu færi eftir klaufalega markvörslu, 1:0.

Framarar létu þetta þó ekki slá sig út af laginu. Dagsskipunin var að treysta á skyndisóknir og á nítjándu mínútu rataði löng sending inn fyrir FH-vörnina þar sem Taylor Hamlett hljóp langhraðast og skoraði með hnitmiðuðu skoti, 1:1. Áfram héldu gestgjafarnir að sækja, en sköpuðu þó lítið. Fréttaritaranum stóð þó ekki á sama og hafði á orði að vonandi yrði flautað sem allra fyrst til leikhlés. Áður en til þess kom átti þó eitt og annað eftir að gerast. Fram fékk hornspyrnu og líkt og gegn Akureyringum í síðasta leik var farið í tilraunamennsku af æfingasvæðinu. Hornið plataði heimakonur upp úr skónum, en líka dómarann sem hljóp í veg fyrir aðvífandi Framara og rændi hana góðu skotfæri. Strax í næstu sókn komst Alda í upplagt færi en kingsaði (já, þetta er réttur ritháttur – smkv. vef Árnastofnunar!)

Á 43. mínútu fékk Brookelynn boltann úti á kanti, skeiðaði af stað og áttisvo hárnákvæma sendingu á Taylor Hamlett, sem tók boltann frábærlega niður og skaut að marki. Einhvern veginn lak knötturinn undir markvörð FH og í netið, 1:2 á besta tíma rétt fyrir lok hálfleiksins.

Fréttaritarinn færði sig neðanþilja. Byrjaði á að taka út salernisskálarnar sem eflaust væri hægt að selja bæjarsjóðnum fyrir fínan pening – en kíkti þvínæst í hið rómaða bjórtjald FH-inga, sem nýi Framsóknarahatursmeirihlutinn í bænum er vafalítið farinn að undirbúa tilboð í. Fréttaritarinn þekkti annan hvern mann á svæðinu, enda tómt sómafólk sem býr í þessu ágæta sveitarfélagi. Þarna voru gamlir skólabræður úr sagnfræðinni og vinnufélagar úr Bjórskólanum. En þar sem fréttaritarinn er vel upp alinn stillti hann sig algjörlega um að ræða karlalið FH við lókalinn.

Þjálfarateymi Fram gerði eina breytingu í hléi. Halla kom inná fyrir Freyju. FH gerði hins vegar tvöfalda skiptingu og öllu afdrifaríkari. Okkar gamli leikmaður Mackenzie fór af velli (reglunni um að nafngreina aldrei leikmenn andstæðinganna er stundum vikið til hliðar þegar um er að ræða fólk sem hefur spilað fyrir Fram) og inná kom leikmaður frá Bermúda, sem átti eftir að gjörbylta leiknum.

Hvað kallar maður e-n sem er frá Bermúda? Ertu Bermúdi (kk) og Bermúda (kvk)? Hvað sem því líður tók það Bermúduna ekki nema fimm mínútur að jafna leikinn. Markið var klaufalegt og skrifaðist á Framvörnina sem stóð sig ekki í að hreinsa frá. Eftir aðrar fimm mínútur skoraði Bermúdan á ný, 3:2, aftur eftir misheppnaða hreinsun.

Framliðið virtist úti á þekju á meðan FH sótti að vild. Úr því var aðeins bætt þegar Framarar skiptu í fjögurra manna vörn og færðu sig örlítið framar á völlinn. Hamlett átti góða rispu upp að endamörkum, krossaði fyrir en félagar hennar voru of seinar á vettvang. Fram virtist ætla að koma sér aftur inn í leikinn en liðið var jafnóðum slegið niður aftur þegar FH komst í 4:2 á 65. mínútu.

Júlía kom inná fyrir Öldu þegar kortér var eftir og mjög farið að draga af mörgum leikmönnum á blautum og þungum vellinum. Algjört dauðafæri leit dagsins ljós þegar Sara Svanhildur náði góðu skoti á 79. mínútu og frákastið hrökk fyrir fætur Hamlett sem náði ekki að skjóta almennilega á tómt markið. Mínútu síðar var hún rifin niður í vítateignum beint fyrir framan dómarann sem aðhafðist ekkert.

Enn skoruðu heimakonur eftir að varnarmenn Fram voru að gaufa við að hreinsa frá marki, 5:2 og sjötta og síðasta markið kom úr klaufalegri vítaspyrnu á lokamínútunni. Í uppbótartímanum bar það helst til tíðinda að 8 sekúndna reglan var virkjuð og Fram fékk hornspyrnu – maður sér það ekki á hverjum degi.

Ergilegt tap en gegn mjög sterku liði var uppskeran. Óæskilegur meðafli í þessari fýluför var hlustarverkur sem breyttist í hreinan hausverk þar sem vallarþulurinn hvatvísi var í sífellu að öskra í míkrafóninn og reyna að leiða hvatningaóp áhorfenda. Til að misbjóða enn frekar eyrum vallargesta ákvað hún að banka í sífellu í hljóðnemann eins og til að líkja eftir klappi – sem er gjörsamlega óþolandi og ætti alls ekki að vera í boði á meðan boltinn er í leik. Kippa þessu í lag FH!

Stærsta tap leiktíðarinnar staðreynd og erfitt að segja annað en að úrslitin hafi verið nokkuð sanngjörn. En nú tekur við hálfs mánaðar hvíld fyrir risaslag í Dal draumanna, þar sem Fram og Bláa lóns skástrikið mætast.

Stefán Pálsson

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!