fbpx
FRAMarar gegn Breiðablik

Gálginn

Niður úr þaki stúkunnar á Kópavogsvelli lafir spotti – vír eða kaðall… það skiptir ekki öllu máli. Spottinn myndar hálfgerðan gálga sem truflar engan nema þann sem hefur rekið augun í hann. En þá um leið mun hann trufla viðkomandi frá fyrstu stundu. Það voru ekki nema fáeinar mínútur liðnar af leik Fram og UBK þegar fyrsti maðurinn í Framhluta stúkunnar benti á þessa skringilegu kaðlahönk. Upp frá því var erfitt að horfa á nokkuð annað.

Fréttaritari Framsíðunnar og Kristján trymbill héldu saman úr Hlíðunum með leið 1. Félagarnir vanmátu afköst Strætó og voru komnir alltof snemma á Kópavogsvöll, sem kom sér vel því það þurfti að fá sér kvöldmat (hamborgara sem var fínn en engin Michelin-stjarna) og tékka á bjórsölu Blika þar sem léttur Thule var á boðstólum. Haustleikir á mánudagskvöldum eru oft takmörkuð skemmtun og mætingin í kvöld var í samræmi við það.

Leikurinn hófst og fréttaritarinn og Hnífsdælingurinn héldu upp í stúku þar sem þeir fundu sæti við hliðina á Skjaldsveininum með fleytifullan markapela, Rabba trymbil og Gylfa Steini sem er reyndar Bliki en sest aldrei fjarri fleygnum góða. Í röðinni fyrir aftan var valinkunnur skríllinn, með Þorbirni Atla og Ragnhildi, Adda í bankanum, Ívari Guðjóns og Rokkrásarbræðrum.

Framliðið vantaði Fred sem virðist hafa tognað í síðasta leik. Liðið var því á þessa leið: Viktor í marki. Sigurjón, Kyle og Þorri aftast í vörninni. Halli í bakverði. Ægir Jarl aftastur á miðjunni með Frey og Kristófer Konráðs fyrir framan sig. Róbert og Vuk frammi og Kennie þar sem honum hentaði að vera hverju sinni.

Leikurinn hófst og fljótlega kom í ljós að Framarar voru ekki mættir fyrstu tíu mínúturnar. Blikar sóttu og sóttu á meðan okkar menn virtust hugmyndasnauðir. Það kom því alls ekki á óvart þegar heimamenn komust yfir á 6. mínútu, 1:0. Ekki í fyrsta sinn í sumar sem okkar menn hefja leik illa, en hressast eftir að hafa lent undir.

Þegar klukkan sýndi tíu mínútur hrukku okkar menn snögglega í gang og tóku öll völd á vellinum. Við tók bráðskemmtilegur fyrri hálfeikur þar sem Framarar náðu hverju skoti að Blikamarkinu á fætur öðru, en flest voru varin af varnarmönnum sem náðu að henda sér fyrir boltann. Á fimm mínútna kafla áttu þeir Róbert, Vuk og Kennie allir skot sem smullu í aðvífandi varnarmönnum Ungmennafélagsins. Heimamenn gátu þó ekki varist endalaust og á fimmtándu mínútu hrökk sending frá Kristófer úr þvögu á markteignum fyrir fætur Róberts sem kom aðvífandi og skoraði með fallegu skoti, 1:1.

Róbert var í banastuði í þessum fyrri hálfleik og aðeins tveimur mínútum síðar var hann búinn að leggja upp mark númer tvö, þar sem hann lagði boltann frábærlega fyrir Halla sem kom aðvífandi og skoraði 1:2.

Kennie komst í kjörfæri til að auka forystuna áður en Vuk skoraði þriðja markið eftir einfalt samspil við Halla, sem var maður leiksins að mati fréttaritarans, þótt einnig mætti tilnefna þá Róbert og Ægi Jarl, sem báðir voru frábærir. Undir lok hálfleiksins kom svo fjórða markið eftir mikið klafs í Blikateignum þar sem boltinn hrökk af Kennie og í markið af löngu færi, 1:4.

Það var glatt á hjalla á Blikabarnum í hléi. Minnugir Framarar rifjuðu þó upp síðasta leik liðanna þar sem Fram leiddi einmitt 4:1 í hléi en gestirnir kroppuðu tvö mörk til baka og gerðu þetta óþarflega spennandi í lokin. Ekki yrði sú aftur raunin?

Öfugt við fyrri hálfleikinn voru Framarar með fullkomin völd á leiknum fyrstu tíu mínúturnar eftir hlé, en þá hófst viðsnúningurinn. Skyndisókn Blika, sú fyrsta í seinni hálfleik, gaf mark á 56. mínútu, 2:4. Þjálfarateymið brást við með því að skipta á Má og Kristófer en það breytti því ekki að Blikar minnkuðu muninn í 3:4 á 59. mínútu eftir sofandahátt í Framvörninni.

Við tók afar stressandi hálftími. Dómari leiksins leyfði Blikum að brjóta endalaust á Frey, að því er virðist vegna þess að hann fleygir sér ekki í jörðina í hvert sinn sem hann fær í sig spark. Á sama hátt virtust grænklæddir fá endalausar aukaspyrnur fyrir minnstu snertingu síðasta kortérið. Vuk og Freyr fóru af velli þegar kortér var eftir en Jakob og Israel komu inn. Næstu mínútur buldu sóknirnar á Framvörninni, með sláarskoti og tveimur frábærum vörslum frá Viktori sem var virkilega góður í kvöld. En þegar leið á fjaraði undan sókarnlotum heimamanna. Baddi kom inná fyrir Róbert undir lokin og loks gall flautan, annan leikinn í röð vann Fram Blika 4:3 í taugatrekkjandi leik. Næsta stopp KA í Dal draumanna á sunnudag!

Stefán Pálsson

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!