fbpx
Tvíhöfði

Tvíhöfði laugardag 5. sept. FRAM – Þór Olís deild karla kl. 16:00 og FRAM Grótta kl. 18:15. Lambhagahöllin.

Það er komið að því, loksins komið að því.

Á laugardag hefst handknattleikstímabilið hjá okkur Frömurum með TVÍHÖFÐA í Lambhagahöllinni. Þ.e. heimaleikur hjá báðum liðum. Meistaraflokkur karla hefur leik klukkan 16:00 á móti Þór Akureyri og svo beint í kjölfarið tekur meistaraflokkur kvenna við með leik við Gróttu.

Við erum gríðarlega spennt að sjá krakkana í leik, baráttu, klístri og stemningu á ný. Við verðum að sjálfsögðu með veitingar og drykki sem gera stemninguna þeim mun betri.

Ekki láta þig vanta! Við minnum á Ársmiðasölu inni á stubb og hægt er að nálgast link hér í bio á instagram eða finna okkur á stubb.is.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!