Knattspyrnufélagið Fram býður Asmir Begovic, David Smalley og Alex Balaskas – þjálfara Asmir Begovic goalkeeping academy – hjartanlega velkomna á Lambhagavöll í Úlfarsárdalnum 6. og 7. júní.
Þetta er þriðja árið í röð sem Fram og Asmir Begovic goalkeeping academy halda markmannsnámskeið fyrir stráka og stelpur í Úlfarsárdalnum, en námskeiðunum hefur verið vel tekið og heppnast með eindæmum vel þar sem mikill fjöldi efnilegra markmanna víðsvegar af landinu æfði undir handleiðslu frábærra þjálfara.
Verð á námskeiðið er 29.500 kr og innifalið er heitur matur í hádeginu og hressing.
Skráning á námskeiðið er á Abler: Fram | Námskeið | Abler
Þjálfarar í ár verða Asmir Begovic, David Smalley og Alex Balaskas, ásamt íslenskum þjálfurum.
Asmir Begovic þarf vart að kynna en hann er í dag á mála hjá Leicester City. Áður hefur hann spilað með stórliðum á borð við Chelsea, Everton, AC Milan, Stoke City og Portsmouth.
David Smalley er núverandi markmannsþjálfari Aldershot Town. Hann er með UEFA A markmannsþjálfaragráðu og spilaði áður sem atvinnumaður hjá Reading og Yeovil Town. Smalley hefur gegnt sambærilegri stöðu hjá Hampton og Richmond Borough, ásamt því að hafa þjálfað hjá kvennaliði og akademíu Chelsea. Hann er aðalmarkmannsþjálfari í Markmannsakademíu Asmir Begovic.
Alex Balaskas er markmannsþjálfari hjá Markmannsakademíu Asmir Begovic. Hann er reynslumikill þjálfari sem býr yfir mikilli þekkingu á þjálfun og hefur starfað við markmannsþjálfun hjá Crystal Palace og AFC Wimbledon.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá steinar@fram.is
