fbpx
FRED gegn FH I

Tekinn!

Eilífðartáningurinn Auddi Blö stóð fyrir sjónvarpsþáttum að erlendri fyrirmynd fyrir allmörgum árum þar sem falinni myndavél var beitt til að hrella saklausa borgara. Þegar glensið var farið að hlaupa yfir öll mörk og fórnarlamb hrekksins farið að rífa hár sitt og skegg, stökk Húvetningurinn geðþekki fram og hrópaði „Tekinn!“ – til að árétta að allt væri í plati. Megnið af tímanum í viðureign FH og Fram biðu stuðningsmenn bláklæddra eftir að Auddi Blö stykki fram og hrópaði „Tekinn!“ – það hefði útskýrt allt ruglið og vitleysuna.

Leikir FH og Fram í Kaplakrika síðustu ár hafa verið ólíkindaleikir. Þar hefur verið mikið skorað og lítið farið fyrir öguðum varnarleik. Þessir leikir hafa oft verið síðsumars en ekki í vorbyrjun þegar völlur Hafnfirðinga hefur verið kargaþýfi, betur fallið til kartöfluræktar en fótbolta. En vorið er tíminn á Íslandi.

Skjaldsveinninn Valur Norðri hafði fengið frímiða á leikinn í gegnum eitthvað hark í vinnunni. Nánar tiltekið fjóra frímiða! Það dugði fyrir hann sjálfan, fréttaritara Framsíðunnar og trymblana tvo: Rabba og Kristján Hnífsdæling. Sá síðarnefndi varð svo þakklátur að hann reddaði kjarnafjölskyldunni í að skutla til og frá vellinum, sem ýtti enn frekar undir hedónisma fréttaritarans. Það var skriðið inn á Kaplakrika tuttugu mínútum fyrir leik og sest í bjórtjaldinu við hliðina á Botnleðjuliðum úr Fimleikafélaginu. Kaplakriki er einhver allra skemmtilegasti völlur landsins fyrir áhorfendur og sjálfsagt að hrósa því.

Það hafði verið bongó í Hlíðunum í Reykjavík og fréttaritarinn mætti því léttklæddur í kælikistuna Kaplakrika. Það blés og sólin var sterk og lágt á lofti. Áhorfendur þurftu hlífðarklæðnað og markverðir derhúfur. Viktor stóð í Frammarkinu sem þá Þorra, Sigurjón og Kyle fyrir framan sig – Kennie og Halla í bakvörðum, Ægi Jarl aftastan á miðjunni og Fred og Simon þar fyrir framan. Vuk og Atla frammi. Sama uppskrift og í sigrinum góða í síðasta leik.

Völlurinn var glataður – verum með það alveg á hreinu! Þungur grasvöllur, 2-3 vikum of snemma, var aldrei að fara að bjóða upp á fallegan fótbolta. Okkar mönnum var þó óþarflega brugðið yfir vallaraðstæðunum.

Í fyrstu sókn leiksins lentu Framarar í tómu klandri við að hreinsa frá marki og eftir nokkrar sendingar og frákost í teignum lak boltinn inn í Frammarkið, 1:0 og bara fimm mínútur á klukkunni. Tveimur mínútum síðar jöfnuðu Framarar metin. Vuk brunaði upp kantinn og sendi svo hárnákvæmt fyrir þar sem Ægir Jarl kom aðvífandi og jafnaði metin, 1:1.

Tveimur mínútum síðar þurfti Viktor sjónvarpsmarkvörslu til að halda stöðunni óbreyttri og mínútu síðar varð staðan 2:1 eftir snarpa skyndisókn heimamanna. Þrjú mörk  á ellefu mínútum og leikurinn varla byrjaður!

Eftir markið tóku Framarar öll völd á vellinum. Lélegt grasið gerði það að verkum að snertingarnar urðu stundum fleiri en ella og sendingarnar ónákvæmari, en heimamenn virtust ekki hafa neitt annað plan en að falla til baka og verjast. Við tók tímabil fáheyrðra yfirbuðra Framliðsins. Atli var hársbreidd frá því að prjóna sig í gegn á 19. mínútu. Tveimur mínútum síðar átti Kennie skot yfir og aftur í næstu sókn. Á 25. mínútu varð svo darraðardans inni í FH-teignum sem endaði á að Ægir Jarl skaut framhjá.

Framsóknirnar komu á færibandi og bara þær markverðustu eru taldar til: Þorri prjónaði sig í gegnum Hafnarfjarðarvörnina á 30. mín. og sendi á Vuk sem skaut rétt framhjá út dauðaffæri. Hörkusókn Framarara rétt í kjölfarið endaði á að Ægir Jarl negldi yfir af skömmu færi. Rétt í kjölfarið var Vuk nánast sloppinn í gegn. Framarar á pöllunum héldu áfram að styðja sína menn og töldu sig illa svikna að fá ekki 1-2 víti í leiðinni. Þrumuskot frá Kyle söng svö í hliðarnetinu á 35. mínútu eftir að hafa hrotið af varnarmanni. Bylmingsskot frá Fred var glæsilega varið á 37. mínútu – hvernig vorum við ekki búnir að skora 4-5 mörk?

En óvinurinn kunni líka að sækja. FH hafði varla átt sókn að marki Framara en á 43. mínútu náðu þeir óvæntum skalla sem small í stönginni. Á lokamínútu fyrri hálfleiksins fékk FH svo fágæta hornspyrnu sem endaði í marknetinu eftir furðulega dapran varnarleik okkar manna – 3:1 og Fram allt í einu orðið tveimur mörkum á eftir gegn liði sem varla hafði hætt sér yfir miðju allan leikinn. Hvenær myndi Auddi Blö stökkva fram og upplýsa að þetta væri allt eitt stórt grín?

Eftir hlé tók það sama við. FH lá langt til baka og sýndi litla tilburði til að verjast. Fred var allt í öllu á miðjunni – (hvenær munu menn almennt viðurkenna að hann er besti leikmaður deildarinnar í dag?) – og við héldum áfram að þjarma að þeim. Þorri minnkaði muninn í 3:2 mað auðveldum skalla eftir hornspyrnu á 51. mín. Fjarvera Þorbjörns Atla og frú Ragnheiðar varð enn vandræðalegri í ljósi þessa fína marks frumburðarins. Vuk þrumaði að marki á 54. mín. en svo datt leikurinn aðeins niður þar til að okkar allra besti Fred skeiðaði upp kantinn, átti frábæra þversendingu sem fór beint í tærnar á Kennie sem steig af sér varnarmann og skoraði með bylmingsskoti, 3:3 og allt komið á byrjunarreit.

Eftir markið tók Fram öll völ á nýjan leik á meðan FH var úti á þekju. Á 73. mínútu endurtók sagan sig – Fred spændi sig í gegnum slappa FH-vörnina, sendi fyrir og aftur kom Kennie aðvífandi og setti boltann í netið. Fram var allt í einu komið með forystuna! Ó, hvað við sungum!

Þjálfarateymið á varamannabekknum var furðuíhaldssamt við þessar aðstæður. Sjá mátti úr flugvél að Atli var útkeyrður en Byström og Freyr voru augljósir menn í að stíga inn við þessar aðstæður. Engu að síður varð fyrsta skiptingin ekki fyrr en á 83. mín þegar Fred fór af velli fyrir Badda. Framarar drógu sig aftur á völlinn – fullkomlega að óþörfu – og ónýtt FH-lið fékk færi til að blása til sóknar. Það var ekki fyrr en á lokamínútu venjulegs leiktíma að Byström fékk að koma inná fyrir Vuk og Freyr náði síðustu sekúndunum fyrir Atla. FH fékk nokkur hálffæri en fór aldrei nálægt því að ógna okkar fræga sigri. 3:4 á útivelli er alltaf frábært og skiptir þar engu þótt mótherjinn sé fallbyssufóður á leið í Lengjuna eins og FH óneitanlega er – Framarar styrkja stöðu sína í efri hlutanum og næst er skyldusigur gegn Val í Dal draumanna.
Þar verður fréttaritari Framsíðunnar fjarri góðu gamni enda á kafi í kosningabaráttu fyrir kommana í Vinstrinu. Sjáumst síðar!

Stefán Pálsson

Kristinn Steinn Traustason tók myndir sem hægt er að skoða hérna: https://www.flickr.com/photos/99255499@N07/albums/72177720333459023/

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!