fbpx
FRAM - Gr

Piparbelgur

Lukkudýr eða öllu heldur lukkugarðávöxtur heimsmeistaramótsins í fótbolta í Mexíkó árið 1986 var piparbelgur sem státaði af bæði stærsta sombreró og voldugasta yfirvaraskeggi í heimi. Fígúru af þessu tagi hefði í dag verið þverslaufað fyrir að spila á allar svæsnustu staðalmyndirnar – en úr því að Mexíkóar hönnuðu þetta sjálfir gæti verið að belgurinn teljist sleppa til. Fréttaritari Framsíðunnar er maður fortíðarþrárinnar og pantaði sér fyrir margt löngu stuttermabol með téðri jurt. Bolurinn forljótur og svo æpandi gulur að hann gagnast helst við gangbrautavörslu. En þar sem fréttaritarinn hafði mætt í útvarpsviðtal á Rás 2 um HM í fótbolta klæddi hann sig í gula bolinn ljóta og brá sér í fína appelsínugula vestið utanyfir. Stílistinn grætur einn í nóttinni.

Þegar komið var í Dal draumanna að viðtalinu loknu kom í ljós að vestinu var ofaukið. Það var hlýtt og sterk sól. Það blés hraustlega í fyrri hálfleik, en það truflaði ekki áhorfendur sem höfðu það fínt á bolnum. Það vantaði ýmsa fastagesti á völlinn, sem er óskiljanlegt. Það er engin afsökun að HM sé byrjað – allir vita að íslenski boltinn og útlenski boltinn reiknast af sitthvorum kvótanum á sama hátt og aðalréttur og eftirmatur rata í hvor í sitt magahólfið. Fréttaritarinn fann þó félagsskap og stuðning hjá pabba og ömmu Júlíu Margrétar, sem raunar byrjaði á bekknum.

Mótherjarnir voru Grindavík/Njarðvík, lið sem telst í hörku fallbaráttu ásamt Framliðinu. Þetta var því leikur sem við máttum illa við að tapa. Það gerðist þó samt.

Liðið var á þessa leið: Orkus í markinu. Halla, Gilmore og Harpa í þriggja kvenna öftustu varnarlínu. Freyja Dís og Katrín vængbakverðir. Katrín öftust á miðjunni með Söru Svanhilid og Brookelynn þar fyrir framan og Hamlett og Öldu uppi á toppi.

Gestirnir byrjuðu betur – og raunar talsvert betur. Orkus átti sína fyrstu góðu vörslu strax á fimmtu mínútu og upp úr hornspyrnunni náði skástrikið að skora á meðan varnarmenn Fram horfðu ráðalitlar á, 0:1 og afleit byrjun. Eftir þetta reyndu Framkonur, með nokkuð sterkan vind í bakið að færa sig framar á völlinn en efnilegar sóknir runni yfirleitt út í sandinn vegna ónákvæmra eða óskynsamlegra sendinga á fremsta þriðjungi.

Á 21. mínútu mátti litlu muna að forskot hvítkláddra gestanna tvöfaldaðist, eftir að sóknarmaður þeirra lék 2-3 Framara upp úr skónum en markvörður okkar varði frábærlega. Það sem eftir var fyrri hálfleiks taldi fréttaritarinn þrjár frábærar markvörslur til viðbótar. Í uppbótartímanum skall svo hurð nærri hælum, þar sem framherji Suðurnesjakvenna var stærri og sterkari en miðvörður Fram og var sloppin ein í gegn, en Ási dómari (sem er öðlingur og mikill bjórspekúlant) flautaði á bakhrindingu sem hann hefði auðveldlega getað sleppt.

Það var frekar dauft yfir bænum í hléi. Framarar heppnir að vera ekki þremur til fjórum mörkum undir, en góðu fréttirnar voru að þetta gæti ekki orðið slakara eftir hlé.

Una Rós kom inná fyrir Höllu í byrjun seinni hálfleiks og þjálfarinn endurskipulagði varnarleikinn. Það skilaði sér strax. Gestirnir héldu áfram að fá færi en ekki eins mörg og jafngalopin. Framarar fóru líka aðeins að hressast fram á við. Liðið fékk nokkrar hornspyrnur sem sköpuðu usla. Freyja Dís, sem var einna fjörlegust okkar kvenna, tók flest hornin og hún átti líka bylmingsskot á 63. mínútu. Við það tilefni hripaði fréttaritarinn í stílabók sína: „Framarar eru að eflast og líklegra liðið til að skora!“ – Kallið mig Hr. Jinx, en mínútu síðar var staðan orðin 0:2 eftir að sóknarmaður gestanna náði alltof auðveldlega að prjóna sig í gegnum vörnina.

Það dofnaði yfir leiknum eftir markið. Júlía kom loks inná fyrir Brookelynn á 67. mínútu sem gladdi fréttaritarann, Inga pabba hennar og ömmuna, en þar með voru gleðiefnin nokkurn veginn upptalin. Við gerðum heiðarlega tilraun til að heimta víti fyrir hendi, en líklega var lítið í því. Og jú, Hildur María átti lúmskt skot á 85. mínútu sem var næstum búið að leka inn, en gripið á síðustu stundu. Slæmt 0:2 sem þýðir að okkar konur þurfa að fara fjallabaksleiðina (eða í þessu tilviki Suðurstrandarveginn) á seinni hluta tímabilsins. En það er nóg eftir. Og við eigum klárlega besta markmanninn í deildinni, það er þó ekki haldlaust geip. Engin skýrsla væntanleg fyrir næsta leik. Lífið er of stutt til að heimsækja Akureyri á mánudegi í júní.

Stefán Pálsson

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!