Knattspyrnudeild Fram gekk í dag frá samningi við Hauk Baldvinsson. Haukur kemur til okkar Framara frá Breiðabliki þar sem hann var m.a. Íslandsmeistari árið 2010. Haukur er snarpur og leikinn leikmaður og frábær viðbót við þann leikmannahóp sem við Framara höfum fyrir.
Knattspyrnudeild FRAM býður Hauk velkominn og væntir mikils af honum í framtíðinni.