Nú er tækifæri fyrir FRAMARA að koma saman og hafa gaman; foreldra iðkenda, foreldrafélög, starfsmenn, stjórnarmenn og í raun allir sem hafa FRAMtennur! Þorrablót FRAM verður haldið í FRAMheimilinu laugardaginn 19.janúar og hefst klukkan 19 að staðartíma.
Veisluborðið mun svigna undan þorramat frá Kónginum í Múlakaffi.
Raggi Bjarna og Þorgeir Ásvaldsson sjá til þess að allir verði í rétta gírnum. Þeir taka sínar bestu perlur og fá fólk til að syngja með.
Happdrætti.
Hljómsveitin MILANO.
Miðapantanir hjá Kristni – kristinn@fram.is – og Þór – toti@fram.is – eða í síma 533 5600.
Krakkar í yngri flokkum Knattspyrnudeildar munu einnig annast miðasölu þar sem hluti miðaverðs rennur til þeirra.
Miðaverð 5.800,-
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.